Biskup Íslands hefur ákveðið að séra Þórhildur Ólafs þjóni í Neskirkju frá 1. október til loka júní 2010 en séra Sigurður Árni Þórðarson verður í námsleyfi á sama tíma. Þórhildur þjónaði s.l. vetur í afleysingu í Fella- og Hólakirkju í Breiðholti og var áður prestur í Hafnarfirði. Fimm sóttu um að fá að leysa af.