Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédkar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður og gleði. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.