Góður hópur krakka hefur nú þegar skráð sig á leikjanámskeið sem hefjast í næstu viku. Námskeiðin verða fjögur í ár, tvö í júní og tvö í ágúst. Enn eru nokkur laus pláss á námskeiðunum en skráningar má senda á neskirkja@neskirkja.is eða hringja í síma 511-1560. Meiri upplýsingar má finna á vef ÍTR.