1. Verið góð við dýrin. 2. Ekki gefa lömbunum hey. 3. Verið góð við hvert annað. Þetta eru reglurnar á Bjarteyjarsandi og Sunnudagaskólahópurinn frá Neskirkju fylgdi reglum sveitabæjarins með sól í hjarta. Við fengum að gefa nýfæddu lambi pela, fóðra mannígu kanínuna Kát, og grilla á bæjarhlaðinu í félagsskap fjörugra hunda. Á bakaleiðinni fóru fram skólaslit í Sunnudagaskólanum í Hallgrímskirkju á Saurbæ. Starfsfólk Sunnudagaskólans þakkar fyrir veturinn og hlakkar til nýs skólaárs. Myndir eru á myndasíðu BaUN.