Í vorblíðunni síðasta miðvikudag (20. maí) hittust æskulýðsfélög á höfuðborgarsvæðinu í Nauthólsvík. Ýmislegt var í boði en krakkarnir fóru í báta saman, spiluðu strandblak, kepptu um besta sandkastalann, þáðu pylsur og nutu góða veðursins. Krakkarnir úr fönix og NeDó létu sig ekki vanta og eru myndir af fjörinu á myndasíðu BaUN.