Messa og barnastarf 3. maí hefjast kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson talar um hugmyndir okkar um himin og eilífð í prédikuninni. Messu- og altarisþjónusta: Sr. Halldór Reynisson og messuþjónar. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Umsjón: Sigurvin, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.