Á síðasta degi vetrar voru útskrifuð 24 leiðtogaefni úr Farskóla leiðtogaefna við hátíðlega athöfn í Hafnafjarðarkirkju. Það var myndarlegur hópur sem þar þáði viðurkenningu fyrir störf sín í vetur og framtíð kirkjunnar er sannarlega í góðum höndum ef marka má leiðtogaefnin. Tvær efnilegar stúlkur úr starfi Neskirkju útskrifuðust í gær, þær Rakel Vilhjálmsdóttir og Kristín María Erlendsdóttir, en þær eru báðar að ljúka 10. bekk í hagaskóla. Myndir úr útskriftinni eru á myndasíðu BaUN.