Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Magnús Ragnarsson. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Prédikun dagsins fjallar um sjötta boðorðið: Þú skalt ekki drýgja hór. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torgi eftir messu.