Í messunni 8. mars voru miðar á sálmabókum. Þeir voru til að skrifa á vonir, bænir, áætlanir um það sem við getum gert til að bregðast við kreppunni. Fólk hengdi svo miðana á glerið við brúna milli kirkju og safnaðarheimilis. Elskusemin og umhyggjan skín í gegn. Þetta eru merkismiðar fyrir upprisu Íslands.
Í messunni 8. mars voru miðar á sálmabókum. Þeir voru til að skrifa á vonir, bænir, áætlanir um það sem við getum gert til að bregðast við kreppunni. Fólk hengdi svo miðana á glerið við brúna milli kirkju og safnaðarheimilis. Elskusemin og umhyggjan skín í gegn. Þetta eru merkismiðar fyrir upprisu Íslands:

• Að koma til messu.
• Þú skalt elska börn þín svo tröll verði ekki til.
• Styrkja fjölskylduböndin, bæði í stór fjölskyldunni og þeim nánustu.
• Elska, biðja, gefa.
• Vinna, púla, pæla, þræla.
• Að sýna elsku til allra manna og hjálpa öllum sem maður getur.
• Auka tengsl, væntumþykju og ást.
• Elskið náungann.
• Sýnt umburðarlyndi og aðstoðað þá sem eru hjálparþurfi.
• Ég vil elska fólkið mitt fordómalaust.
• Verum jákvæð – Jákvæðni sigrar allt.
• Ég vil að Drottinn veiti mér náð til þess að ég elski náunga inn eins og sjálfan mig.
• Hafa áfram markmið, biðja meira, sjá það góða næst okkur, vera glaðleg.
• Brosa meira! Hrósa meira!
• Látið mig líf og heilsu varða hjá öðru fólki. Sýnt umburðarlyndi. Rækta jákvæðni með sjálfri mér. Rækta nægjusemi. Hrósa öðrum fyrir gott.
• Hjálpa þeim sem minna mega sín.
• Þjónusta við sannleika.
• Vertu við aðra eins og þú vilt að aðrir séu við þig.
• Taka frá tíma fyrir náungann.
• Gef að Ísland megi rísa aftur, og forði okkur frá græðgisliði sem gert hefur okkur óskunda, með Guðs hjálp.
• Súpa. Kærleik.
• Sækja kirkju til að styrkja stoðir kærleikans og miðla honum til annarra.
• Lærum að fyrirgefa.
• Verum jákvæð.
• Segja frá Jesú, þjóna honum í kirkjunni minni.
• En nú varir trú, von og kærleikur og þeirra er kærleikurinn mestur.
• Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður svo skulið þið og þeim gjöra.
• Hlúa að börnunum og þeim sem eru andlega veikir. Veita öldruðum félagsskap.
• Kenna börnum mun á réttu og röngu = bæta siðgærði þjóðar.
• Vera eins og Jesú. Vera góður maður.
• Kærleikurinn. Virðing fyrir öðrum.
• Nýtt gildismat.
• Rækta boðorðinn 10. 2Mos. 20. 1-17. Elska náungan eins og sjálfan þig.
• Treysta Guði fyrir lífi sínu. Fyrirgefa. Elska, einnig þá sem hafa brugðist manni. Þakklæti.
• Umgangast hvern mann eins og ég vildi að hann umgengist mig.
• Að skrifa ævintýri/sögur semeru athyglisverð en benda líka til Guðs og gefa lesandanum afl fyrir lífið.
• Náungakærleikur. Nú varir trú, von og kærleikur. Þeirra er kærleikurinn mestur.
• Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi! Sýna skilning! Taka saman! Enginn er eins! Hlustaðu – elskaðu!