Fastan er tími íhugunar. Val á hráefni í föstumat hefur ekki aðeins stjórnast af þörfum líkamans heldur líka hins innri manns. Í þeim anda verður saltfiskur framreiddur í Neskirkju á föstudaginn kemur. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir mun ræða um sáttaferli í fyrstu borðræðunni. Máltíð hefst um kl. 12.
Fastan er tími íhugunar. Um aldir hefur val á hráefni í föstumat ekki aðeins stjórnast af þörfum líkamans heldur líka hins innri manns, sálarinnar. Í þeim anda verður saltfiskur, hefðbundinn föstumatur við Miðjarðarhafið, framreiddur í safnaðarheimili Neskirkju á föstudögum á föstunni.

Fyrsti saltfiskdagur Neskirkju verður 27. febrúar. Borðhald hefst um kl. 12. Kl. 12,30 verða fluttar stuttar borðræður, sem þjóna áherslu föstunnar á hreinskilni. Ytri aðstæður okkar Íslendinga hvetja til breytinga eða viðsnúnings. Þau er flytja borðræður eru:

27. febrúar. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir: Hvert er ferli sáttarinnar?
6. mars. Sr. Berharður Guðmundsson: Sáttin í ljósi reynslunnar.
13. mars. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir: Viðsnúningur
20. mars. Dr. Halldór Guðjónsson: Umbreyting
27. mars. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir: Fyrirgefningin
3. apríl. Dr. Sigurður Árni Þórðarson: Uppgjör – sátt.

Allir velkomnir í saltfisk og hreinskilnar borðræður. Lífið er saltfiskur og fleira.