Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Stúlknakór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea, Ari og Alexandra. Samfélag, súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu.