Það má með sanni segja að í Neskirkju fyllist allt af börnum á aðventunni. Undanfarna viku hafa 8 leikskólar sótt okkur heim, notið helgistundar og fengið piparkökur og kakó. Í dag sýna 4. bekkingar í Melaskóla helgileik fyrir yngri börnin og skólahópa leikskólanna, á morgun heimsækir Grandaskóli okkur og á föstudag Hagaskóli. Við höfum verið dugleg að taka myndir í leikskólaheimsóknunum og þær má nálgast á aðventusíðu BaUN.