Fyrsti leikskólinn kom í heimsókn til okkar í gær (09.) en það voru ljúf börn frá Mánagarði. Í dag (10.) koma gestir frá Grandaborg, á morgun Vesturborg og Gullborg, á föstudag Hagaborg og í næstu viku Skerjagarði, Sæborg og Ægisborg. Neskirkju er mikill heiður að því að fá allt þetta unga fólk í heimsókn á aðventuna til helgistundar. Hægt að nálgast myndir af aðventustundum í Neskirkju á aðventusíðu Barnastarfsins.