Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuhópur þjónar. Börnin byrja upp í kirkju en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón hafa þau Sunna Dóra, Andrea og Ari. Eftir messu er boðið upp á súpu, brauð, kaffi og samfélag á Torginu.