Fyrra sumarnámskeiði júnímánaðar lauk nú á föstudaginn með sveitaferð en hópurinn heimsótti Hraðastaði í mosfellssveit og fékk að mæta þar dýrum af öllum stærðum. Fjölmargir af fyrra námskeiðinu skiluðu sér á námskeið II sem hófst í þessari viku. Hópur heimsótti í gær sjóminjasafn við Granda og fékk að fara um borð í varðskipið Óðinn. Á föstudaginn er stefnan tekin á Maríuhella í Hafnafirði og klaustur Karmelsystra. Fullt af nýjum myndum eru komnar á myndasvæðið.