Út af með dómarann! Um dóma, bjálka og flís. Dag hvern eru kveðnir upp dómar fyrir dómstólum. Svo erum við öll dómarar og erum sídæmandi. Hvernig eigum við að dæma? Hvað megum við dæma? Hver dæmir okkur? Um þetta verður leitast við að fjalla í prédikun dagsins. Í messunni leiða félagar úr kór Neskirkju safnaðarsöng. Organisti Kári Allansson. Messuþjónar: Valdimar Tómasson og Gruðrún Júlíusdóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.