Á aðventunni komu til kirkju skólar hverfisins og langflestir leikskólar til að þiggja aðventustund í Neskirkju. Slíkar heimsóknir eru yndislegt tækifæri fyrir börnin til að kynnast kirkjunni sinni og okkur í Neskirkju er dýrmætt að undirbúa jólin með börnum hverfisins. Myndavél umsjónarmanns barnastarfsins var á lofti í flestum heimsóknunum og eru þær myndir nú aðgengilegar á myndasíðu barnastarfsins. Það vantar aðfinnanlega myndir af vinum okkar á Grandaborg og Skerjagarði en það fórst fyrir að taka fram myndavélina í þeim heimsóknum.