Reynir Jónasson /sáþHann á afmæli hann Reynir – já hann er 75 ára í dag. Í þrjá áratugi var hann organisti Neskirkju. Til hátíðabrigða heldur Reynir harmoníkutónleika í kirkjunni kl 18. Allir velkomnir!

Hann á afmæli hann Reynir – já hann er 75 ára í dag. Í þrjá áratugi var hann organisti Neskirkju. Til hátíðabrigða heldur Reynir harmoníkutónleika í kirkjunni kl 18. Allir velkomnir!

Þótt Reynir hafi búið lengi á Neshaganum er hann nú samt norðan úr Þingeyjarsýslu. Hann byrjaði snemma að spila á harmóníku og hefur auk kirkjuspilsins leikið á nikkurnar sínar á alls konar samkomum, böllum og fjölmörgum hljómplötum.

Starfsfólk og safnaðarfólk í Neskirkju þakkar Reyni Jónassyni þjónustu hans fyrr og síðar og óskar honum og Agnesi Löve, eiginkonu hans, til hamingju með daginn og blessunar Guðs.