Nýr liðsmaður kemur til starfa í Neskirkju sunnudagin 25. febrúar og mun þjóna í fjórar vikur.
Sr. Þórhildur Ólafs leysir þá af sr. Sigurð Árna Þórðarson sem klárar feðraorlof sitt á sama tíma. Sr. Þórhildur er boðin velkomin til starfa en hún hefur margra ára reynslu sem prestur í Hafnarfirði og víðar.