Hvers eðlis er trú? Þetta mikilvæga en margræða efni er til skoðunar næsta sunnudag. Messan hefst kl. 11. Allir aldurshópar hefja messugerðina saman, en eftir lestra fer unga fólkið í safnaðarheimilið.

Hvað er trú? Það er umræðuefni guðspjalls næsta sunnudags og vissulega hafa menn ólíkar skoðanir á eðli trúar og inntaki. Messan hefst kl. 11. Allir aldurshópar hefja messugerðina saman, en eftir lestra fer unga fólkið í safnaðarheimilið og nýtur helgihalds við hæfi.

Sr. Toshiki Thoma þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Árni Þórðarsyni sem prédikar. Organisti er Steingrímur Þórhallsson. Félagar úr kór Neskirkju syngja. Aðstoð við útdeilingu: Hanna Johannessen.

Umsjón með barnastarfi hafa Guðmunda I. Gunnarsdóttir, Björg Jónsdóttir og Arni Agnarsson.

Verið velkomin, kirkjan er fyrir alla og starfar í þjónustu trúar og lífs.