Aðfangadagur
Jólastund barnanna kl. 16.00. Barnakórar Neskirkju syngja. Stjórnandi Jóhanna Halldórsdóttir. Guðspjallið sett á svið. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Umsjón með stundinni hafa starfsmenn barnastarfsins. Prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Nánar um helgihald yfir jól og árámót!
Fjórði í aðventu
Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og piparkökur í barnastarfinu. Umsjón Stefanía, Guðrún og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu.
Aðventukvöld og ljósahátíð
Sunnudaginn 11. desember kl. 20. Ræðumaður kvöldsins er Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla íslands. Fjölbreytt jólatónlist verður flutt af þremur kórum, Kór Neskirkju, Drengjakór Reykjavíkur og Hljómi, kór eldri borgara. Stjórnandi er Steingrímur Þórhallsson. Prestar kirkjunnar leiða stundina og fermingarbörn tendra ljós og lesa. Falleg og hátíðleg aðventustund. Að henni [...]
Messa og sunnudagaskóli 3. sunnudag í aðventu
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kveikt á þriðja aðventukertinu, hirðakerti. Í messunni syngur eldri barnakór Neskirkju undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og kór Neskirkju undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn er í umsjá Guðrúnar, Katrínar og Ara. Rebbi og Vaka verða á sínum stað og Nebbi [...]
Aðventuhátíð barnanna – stund fyrir börn og foreldra
Neskirkja býður börnum í leikskóla og yngri bekkjum grunnskóla á aðventuhatíð fimmtudaginn 8. desember kl. 17.30. Barnakór syngur, Snuðra og Tuðra bregða á leik og Afi (Örn Árnason) segir sögur. Jólasöngvar og jólasálmar. Góð og gefandi stund fyrir börn og foreldra.
Fjölskylduguðsþjónusta 4. desember
Fjölskylduguðsþjónusta í umsjá prests og starfsfólks barnastarfs. Sögur og söngur. Barnakórar Neskirkju koma fram. Stjórnandi Jóhanna Halldórsdóttir. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
O Magnum Mysterium – Jólatónleikar í Neskirkju
Jólatónleikar Kórs Neskirkju verða sunnudaginn 4. desember kl. 17.00.Drengjakór Reykjavíkur verður sérstakur gestur á tónleikunum. Einsöngur er í höndum Hallveigar Rúnarsdóttur og orgelleikari er Björn Steinar Sólbergsson. Stjórnandi tónleikanna er Steingrímur Þórhallsson organisti og stjórnandi Kórs Neskirkju og Drengjakórs Reykjavíkur. Á tónleikunum flytur Kór Neskirkju tónlist tengda jólum, úr ýmsum áttum, allt frá [...]
Fimm sjónarmið
Fimm sjónarmið Í ljósi þess að breytingar á trúfélagsskráningu hafa áhrif fyrsta desember á ári hverju er rétt að vekja athygli á því hvað þjóðkirkjufólk í Nessókn fær fyrir aurana sína: Byrjum á því augljósasta, húsnæðinu. Nessókn stendur straum af öllu viðhaldi og rekstri á Neskirkju. Byggingin markar tímamót í [...]
Kristín Gunnlaugsdóttir
Krossgötur miðvikudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Kristín Gunnlaugsdóttir, myndlistakona kynnir sýningu sína, Siðbót, sem opnuð var á Kirkjutorginu í byrjun aðventu. Hún hefur sérstaklega unnið verk fyrir sýninguna sem kallast á við 500 ára afmæli siðbótarinnar sem við fögnum á næsta ári. Heitt súkkulaði og sætindi.
Kristnir og múslimar fagna saman Ashura
Ashura hátíð verður haldin í Neskirkju laugardaginn 26. nóvember 2016 kl. 14 – 16. Hátíðin er haldin í samstarfi við félagið Horizon, sem var stofnað af ungum muslimum sem vilja vera virkir í samtali við aðra hópa samfélagsins í að brjóta niður múra og byggja traust. Hátíðin er öllum opin [...]