Hátíðarmessa, barnastarf og opnun sýningar
Kristín Gunnlaugsdóttir listakona Fyrsti sunnudagur í aðventu. Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur í messunni undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestar Neskirkju þjóna. Fjallað verður um um myndlistarsýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur, Siðbót, sem opnuð verður í lok messunnar. Þar segir listamaðurinn frá verkum sínum. Sýningin markar [...]
Aðventan
Krossgötur miðvikudaginn 23. nóvembar kl. 13.30. Steingrímur Þórhallsson, organisti í Neskirkju, sest við orgelið og flytur tónlist sem tengist aðventunni. Mögulega verður boðið upp á tónlistargetraun í anda Kontrapunkts! Kaffiveitingar á Torginu.
Messa 20. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11. Síðasti dagur kirkjuársins. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Stefanía, Guðrún, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Tónar og tal
Krossgötur miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.30. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikar býður okkur að njóta tónlistar og fróðleiks, þar sem hún kynnir merkt tónskáld og flytur verk þess. Kaffiveitingar.
Kristniboðsdagurinn 13. nóvember
Messa og sunnudagaskóli kl. 11 að venju. Félagar úr kór Neskirkju syngja í messunni og leiða söng við undirleik Maríu Kristínar Jónsdóttur. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn verður í umsjá Katrínar H. Ágústsdóttur og Ara Agnarssonar. Rebbi og Vaka kíkja við, Nebbi Nú læri eitthvað nýtt og það verður [...]
Bach í poka – orgelnammi
Hádegistónleikar verða í Neskirkju miðvikudaginn 9. nóvember. Tónleikarnar eru á hálfsmánaðar fresti fram í desember þar sem boðið verður upp á Bach í bland við einn annan tónhöfund í hvert sinn. Steingrímur Þórhallsson organisti situr við orgelið.
Heilsa í heimabyggð
Krossgötur miðvikudaginn 9. nóvembar kl. 13.30. Sigríður Haraldsdóttir, sviðsstjóri hjá landlæknisembættinu. Í doktorsrannsókn sinni, spurði Sigríður hvort munur væri á heilsufari Íslendinga eftir búsetu. Niðurstöður hennar varpa merkilegu ljósi á samfélag okkar og þær aðstæður sem landsmenn búa við. Kaffiveitingar.
Barokk á þriðjudagskvöldum
Neskirkja efnir til þriggja fyrirlestra um barokkið næstu þriðjudagskvöld kl. 19.00. Tilefnið er afmæli siðaskiptanna á næsta ári auk þess sem dagskrá þessi er hugsuð sem ákveðinn upptaktur að sýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur, Siðbót, sem opnuð verður 27. nóvember, næstkomandi. Þar vinnur listamaðurinn m.a. með barokkið. 8. nóvember: Skáldin Margrét Eggertsdóttir, [...]
Jón biskup Helgason og myndin af landinu
Málþing í Neskirkju, sunnudaginn 6. nóvember kl. 17:00 Jón biskup Helgason var einstakur maður og frumkvöðull í mörgum skilningi þess orðs. Hann var einn af merkisberum frjálslyndu guðfræðinnar á Íslandi og lagði sig fram um að innleiða nýjar hugmyndir og sjónarmið í íslenskt trúarlíf. Þegar Jón vísiteraði söfnuði, eins og [...]
Messa 6. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Drengjakór Reykjavíkur syngur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Umsjón með barnastarfinu hafa þau Stefanía, Katrín og Ari. Samfélag og kaffimoli eftir messu.