Mannvirðing og umburðarlyndi
Krossgötur miðvikudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Sigmundur Ernir Rúnarsson, fjölmiðlamaður og rithöfundur. Sigmundur Ernir á langan feril að baki í fjölmiðlum, stjórnmálum, ljóðagerð og öðrum ritsmíðum. Í þessu erindi ræðir hann sjónar-mið sín um mannleg samskipti og þau leiðarljós sem við ættum að fylgja í umgengni okkar við náungann.
Messa 12. febrúar
Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Orgnisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn, mikill söngur. Umsjón Katrín, Heba og Ari. Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnudagaskóla.
Krossgötur 8. febrúar
Krossgötur 8. febrúar kl. 13.30. Hólabiskup á 21. öldinni. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum situr á hinum forna Hólastóli og er hún arftaki merkra kirkjuhöfðingja. Má þar nefna Jón Arason og Guðbrand Þorláksson. Hver eru helstu viðfangsefni Hólabiskups á 21. öldinni? Solveig Lára fræðir okkur um þau mál. Kaffiveitingar.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli
Guðsþjónusta kl. 11. Mikil tónlist. Barnakórar Neskirkju syngja undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur, Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, organista. Prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskóli í safnaðarheimili. Gleði og söngur. Rebbi, Nebbi og fleiri líta við. Umsjón Katrín og Ari.
Eini góði Daninn: málvísindarokkstjarnan Rasmus Rask og Ísland
Krossgötur miðvikudaginn 1. febrúar kl. 13.30. Stefán Pálsson, sagnfræðingur er afar skemmtilegur alþýðufræðari. Að þessu sinni ræðir hann framlag Danans Rasmusar Christian Rask til íslenskrar málfræði, en hrakspár Rasks um framtíð íslenskunnar rættust blessunarlega ekki. Kaffiveitingar.
Messa 29. janúar
Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur. Orgnisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn, mikill söngur. Umsjón Steinunn Arnþrúrður Björnsdóttir, Katrín H. Ágústsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnudagaskóla
Tíð og ótíð á Íslandi
Krossgötur miðvikudaginn 25. janúar kl. 13.30. Trausti Jónsson, veðurfræðingur. Sögur af frostavetrum, rigningarsumrum og ýmsum tíðindum og veðráttu liðinna tíma. Trausti hefur safnað saman upplýsingum um veðurfar og veðráttu frá liðnum tímum. Hann deilir með okkur fróðleik og sögum af veðri, þessu vinsæla umræðuefni okkar eyjarbúa.
Messa og sunnudagaskóli kl. 11
Messa kl. 11. Kór Neskirkju syngur og leiðir söng, organisti er Steingrímur Þórhallsson. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn hefst í messunni kl. 11. Nebbi, Rebbi og Vaka koma í heimsókn, mikill söngur. Umsjón Guðrún Þorgrímsdóttir, Katrín H. Ágústsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag á kirkjutorgi eftir messu og sunnudagaskóla [...]
Ferðalög um Suður Afríku
Krossgötur miðvikudaginn 18. janúar kl. 13.30. Eyrún Ingvadóttir, sagnfræðingur og rithöfundur, er víðförul og hefur mörg járn í eldinum. Hún hefur starfað sem fararstjóri og segir nú frá mannlífi og menningu á framandlegum slóðum. Kaffiveitingar.
Samtal um Kristínu
Þriðjudagskvöldið 17. janúar kl. 20:00 verður dagskrá í Neskirkju, helguð verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur en sýning hennar, Siðbót, opnaði á Kirkjutorgi, safnaðarheimili Neskirkju, þann 27. nóvember s.l. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur hugleiðir verk Kristínar og ræðir við listamanninn. Sr. Skúli S. Ólafsson setur samkomuna og stýrir almennum umræðum.