Þriðjudagskvöldið 17. janúar kl. 20:00 verður dagskrá í Neskirkju, helguð verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur en sýning hennar, Siðbót, opnaði á Kirkjutorgi, safnaðarheimili Neskirkju, þann 27. nóvember s.l. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur hugleiðir verk Kristínar og ræðir við listamanninn. Sr. Skúli S. Ólafsson setur samkomuna og stýrir almennum umræðum.