Annar í jólum, 26. desember kl. 11. Helgistund í kirkjunni fyrir alla fjölskylduna. Að henni lokinni hefst jólaball sunnudagaskólans þar sem gengið verður kringum jólatréð og sungið dátt. Góðir gestir kíkja við, gefa börnum jólaglaðning og skemmta ungum sem öldnum. Umsjón hafa sr. Steinunn og starfsfólk barnastarfsins.