Aðfangadagur, kl. 16. Helgistund fyrir börn og fjölskyldur þeirra meðan beðið er eftir jólunum. Barnakór kirkjunnar syngur. Öllum viðstöddum býðst að taka þátt í að leika jólasöguna og við lifum okkur inn í gleði og hátíð jólanna. Steingrímur Þórhallsson leikur undir söng, Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir leiðir stundina ásamt Rúnari Reynissyni og starfsfólki barnastarfsins.