Kaffihúsaguðsþjónusta um verslunarmannahelgi
Kaffihúsaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 11 sunnudaginn 2. ágúst. Stefanía Bergsdóttir guðfræðingur predikar og þjónar ásamt sr. Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Litir og blöð fyrir yngstu kynslóðina.
Sumarleyfi
Vegna sumarleyfa er safnaðarheimilið ekki opið á hefðbundnum opnunartíma í júlí. Helgihald er eins og venjulega, alla sunnudaga kl. 11. Ef þið hafið fyrirspurnir eða viljið ræða við prest getið þið hring eða sent tölvupóst á sr. Steinunni. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir Sími 6622677 Netfang: Steinunn@neskirkja.is
Prjónamessa 26. júlí kl. 11
Sunnudaginn 26. júlí verður prjónamessa hér í Neskirkju, eins og verið hefur síðustu sumur. Meðlimir úr prjónahóp Neskirkju aðstoða við helgihaldið og fólk er hvatt til að taka með sér handavinnu. Allir velkomnir, ungir sem aldnir. Félagar úr kór Neskirkju leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Kaffi og [...]
Guðsþjónusta 19. júlí
Sunnudaginn 19. júlí er guðsþjónsta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Árni Þór Þórsson guðfræðinemi, sem er í starfsþjálfun í Neskirkju, predikar og þjónar með presti. Blöð og litir fyrir yngstu kynslóðina. Kaffisopi og samfélag á torginu eftir guðsþjónustu. Guðspjall dagsins er [...]
Kaffihúsaguðsþjónusta 12. júlí
Fishnets on fish boat. Yellow net. Greece, Gythio Kaffihúsaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 11. Allir velkomnir, ungir sem aldnir. Kaffi og myntute úr garði Neskirkju auk vatns og safa í boði. Börnin fá myndir og liti. Ef veður er mjög gott verður guðsþjónustan færð út í garð. Félagar úr [...]
5. júlí
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffisopi á Torgin eftir guðsþjónustu.
Guðsþjónusta 28. júnÍ
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Kaffisopi eftir messu á Toginu.
Guðsþjónusta 14. júní
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Árni Þór Þórsson, guðfræðinemi, predikar. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélaga og kaffisopi á Torgin eftir messu.
Guðsþjónusta 7. júní
Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Árni Friðrik Guðmundsson og Kjartan Hugi Rúnarsson leika á saxafona. Prestur Sr. Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffi á Torginu eftir messu.
Fermingaveturinn 2020 – 2021
Skráning fermingarbarna fyrir veturinn 2020 - 2021 er hafin. Skránin fer fram rafrænt. Nánari upplýsingar um fermingarfræðsluna ásamt fermingardögum er aðgengileg hér!