Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Meira um Matthías

Krossgötur þriðjudaginn 16. mars kl. 13.00. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um skáldið og prestinn Matthías Jochumsson. Kaffiveitingar.

By |15. mars 2021 11:46|

Sunnudagurinn 14. mars

Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11. Hrafnhildur Guðmundsdóttir leiðir stundina og Ari Agnarsson leikur undir. Þar verður söngur og gleði og sögur. Kaffi og samfélag á Torginu að stundunum loknum.

By |12. mars 2021 13:40|

Æskulýðsdagurinn 7. mars

Fjölskylduguðsþjónusta með léttum brag kl. 11 á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Þorsteins F. Sigurðssonar. Fermingarbörn og starfsfólk barna- og æskulýðsstarfs aðstoða í helgihaldi. Undirleikari er Ari Agnarsson og prestur sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |5. mars 2021 13:36|

Sunnudagurinn 28. febrúar

Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Kjartan Hugi Rúnarsson leikur á saxófón. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11. Hilda María Sigurðardóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir leiða hann og Ari Agnarsson leikur undir. Þar verður söngur og gleði og [...]

By |26. febrúar 2021 10:05|

Biblíuleshópur kvenna – opinn öllum konum

Á þriðjudögum kl. 18 leiðir sr. Steinunn Arnþrúður biblíulestur með konum. Lesnir eru valdir textar og ræddir. Að auki er fræðsla um Biblíuna, tilurðarsögu, það samfélag sem hún varð til í og túlkunarsögu. Allar konur eru velkomnar. Hver samvera tekur um eina klukkustund.  

By |22. febrúar 2021 19:57|

Guðsþjónusta og sunnudagskóli 21. febrúar

Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Gengið er beint inn í kirkjuna um aðaldyr kirkjunnar. Sunnudagskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Söngur, leikir, sögur og gleði. Umsjón Kristrún Guðmundsdóttir, Sóley Anna Benónýsdóttir og Ari Agnarsson. Gengið er beint inn í safnaðarheimilið.

By |18. febrúar 2021 11:58|

Neskirkja auglýsir eftir organista til afleysingar

Laus er til umsóknar staða organista í Neskirkju, Reykjavík, til afleysinga í eitt ár. Um er að ræða fulla stöðu. Skilyrði er að umsækjendur hafi lokið kantorsprófi og hafi víðtæka þekkingu og reynslu af að vinna með kór. Starfskjör, réttindi og skyldur eru skv. kjarasamningi Launanefndar Þjóðkirjunnar og FÍO/organistadeildar FÍH. [...]

By |15. febrúar 2021 17:12|

Sunnudagaskóli 14. febrúar

Sunnudagaskóli kl. 11. Söngur, gleði og saga, litir og samfélag. Umsjón Hilda María Sigurðardóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Ari Agnarsson. Gengið er beint inn í safnaðarheimilið.

By |11. febrúar 2021 09:26|

Guðsþjónusta 14. febrúar

Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson. Gengið er beint inn í kirkjuna um aðaldyr.

By |11. febrúar 2021 09:24|

Sunnudagaskóli og helgistund 7. febrúar

Sunnudaginn 7. febrúar verður sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá sr. Steinunn A. Björnsdóttur og Ara Agnarssonar. Söngur, gleði og saga, litir og samfélag. Gengið er beint inn í safnaðarheimilið. Helgistund í kirkjunni kl. 11 í umsjá sr. Skúla S. Ólafssonar. Steingrímur Þórhallsson leikur á orgel. Gengið er beint inn í [...]

By |4. febrúar 2021 13:37|