Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Þú í kviku tímans

Nú máttu sleppa og núllstilla. Fortíð og nútíð eru gild en framtíðin líka. Hamingjan bíður eftir þér á næsta ári hver svo sem aldur þinn er! Guð opnar tímann. Hugleiðing Sigurðar Árna í aftansöng í Neskirkju á gamlárskvöldi 2012 er hægt að nálgast á tru.is að baki þessari smellu en [...]

By |31. desember 2012 22:19|

Helgihald í Neskirkju við áramót

31. desember – Gamlárskvöld Aftansöngur kl. 18.00. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. 1. janúar – Nýársdagur Hátíðarmessa kl. 14.00. Einsöngur Gissur Páll Gissurason. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Starfsfólk og [...]

By |31. desember 2012 14:03|

Stóra upplifunin

Elli og æska, fotíð og framtíð. Það er stórkostlegt að sjá gamla manneskju, sem beðið hefur alla ævi, njóta loks uppfyllingar vona vegna byggðarlags, þjóðar, allra manna. Og bænasvarið birtist í litlu barni, ómálga óvita. Prédikun Sigurðar Árna á 30. desember milli sunnudags og nýárs er að baki þessari smellu.

By |30. desember 2012 18:32|

Helgihald yfir áramót

30. desember – Sunnudagur Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu. 31. [...]

By |27. desember 2012 09:38|

Helgihald á jólum

24. desember – Aðfangadagur Jólastund barnanna kl. 16.00. Umsjón með stundinni hafa starfsmenn barnastarfsins. Barna- og Stúlknakór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur sr. Sigurvin Jónsson. Aftansöngur kl. 18.00. Einsöngur Ragnhildur Þórhallsdóttir. Tompet Baldvin Oddsson. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Jólanótt kl. [...]

By |21. desember 2012 12:43|

Messa á Þorláksmessu

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |21. desember 2012 12:30|

Jólasöngvar

Fimmtudaginn 20. desember kl. 20 verður jólasöngstund í kirkjunni þar sem Kór Neskirkju, Barna- og Stúlknakór Neskirkju og Hljómur, kór eldri borgara syngja. Stjórnendur Steingrímur Þórhallsson og Jóhanna Halldórsdóttir. Einsöngur Ragnheiður Þórhallsdóttir. Eftir stundina verður boðið upp á kakó og piparkökur.

By |18. desember 2012 11:11|

Ljósamessa 3. sunnudag í aðventu

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Halla, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu [...]

By |12. desember 2012 15:37|

Syngdu með – Messías

Óratorían Messías eftir G.F. Händel verður flutt á tónleikum í Neskirkju sunnudaginn 9. desember kl. 17.00. Þetta eru svokallaðir „sing-along“ tónleikar en þá gefst tónleikagestum færi á að syngja með í kórköflum. Slíkar uppfærslur á Messíasi eru orðnar hefðbundnar víða um heim. Fjölmargir íslenskir kórar hafa sungið Messías á undanförnum [...]

By |6. desember 2012 11:15|

Annar sunnudagur í aðventu

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barna- og Stúlknakórar Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar og Jóhönnu Halldórsdóttur. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari og æskulýðsprestur flytur hugvekju. Kaffiveitningar á Torginu eftir messu.

By |6. desember 2012 11:15|