Aðventudagatal LÆK 2012
Krakkarnir í LÆK (leiklistarfélagi sem starfar með hléum í Neskirkju) settu saman í fyrra aðventudagatal með hugleiðingum þeirra um jólin. Í ár vildu þau endurtaka leikinn og því birtist á hverjum degi hugleiðing fram að jólum á Neskirkja.is. Hátíð kærleika og friðar!
Fyrstu sunnudagur í aðventu
Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Sameigninlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sr. Sigurður Árni Þórðarsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Erni Bárði Jónssyni. Fermd verður Anna Sif Mogensen. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir [...]
Áslaug – Debussy og Pour le Piano
Opið hús kl. 15. Áslaug Gunnarsdóttir píanóleikari leikur og skýrir verk Debussy Pour le Piano frá 1901. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Messa, Messías og jazz
Messa og barnastarf, sunnudaginn 25. nóvember kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Agnar Már Magnússon leikur jassspuna á píanóið. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng og syngur nokkra kórkafla úr Messías eftir Handel en kórinn flytur verkið 2. og 9. desember n.k. Organisti og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar [...]
MESSÍAS 2. og 9. desember í Neskirkju
Kór Neskirkju æfir af kappi þessa dagana og undirbýr sig undir að flytja óratóríuna Messías eftir G.F. Händel á tvennum tónleikum í Neskirkju í byrjun desember. Fyrri tónleikarnir eru 2. desember og verða þeir með hefðbundnu sniði en síðari tónleikarnir sunnudaginn 9. desember eru svokallaðir „sing-along“ tónleikar. Þá gefst tónleikagestum færi á [...]
Opið hús miðvikudaginn 21. nóvember
Opið hús kl. 15. Vigfús Bjarni Bjarnason, sjúkrahúsprestur fjallar um trúarþelið og sögu vestur-íslenskrar konu. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
„Þetta er spurning um skipulag,“ voru prédikunarviðbrögð þrautreynds forstjóra í messulok. Trúin er ekki utan við lífið heldur varðar allt líf manna, líka skugga, illsku og afbrot. Jesúsagan er líka um okkur. Hvernig er skipulagið? Prédikun á næstsíðasta degi kirkjuársins, 18. nóvember 2012, er að baki þessari smellu.
Messa 18. nóvember
Messa og barnastarf kl. 11. Sameinlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
Opið hús
Í opnu húsi miðvikudaginn 14. nóvember kemur Hljómur, kór eldri borgara og Barnakór Neskirkju kom í heimsókn og syngja nokkur lög. Stjórnandi er Jóhanna Halldórsdóttir. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.
Sund í kirkju!
Framan við kórinn var búið að saga stóran hring í gólfið og koma þar fyrir stórri laug með rennandi vatni. Það var hægt að fara í stóran pott - í kirkju. Á Marteinsmessu var í prédikun íhuguð skírnarskipun Jesú, skírn barna á siðbótartíma og í nútima. Prédikunin 11. nóvember er [...]