Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Viðhorf til eilífðarmálanna fjær og nær

Opið hús miðvikudaginn 6. febrúar kl. 15. Dr. Erlendur Haraldsson, fyrrum prófessor í sálfræði, mun tala um lífsgildi, lífsgildakönnun og handanveruna. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.

By |5. febrúar 2013 09:12|

Opið hús

Opin hús er alla miðvikudögum fram á vor og hefjast með kaffi og með því kl. 15 og svo er gengið til fræðandi og einlægrar dagskrár kl. 15, 30. Miðvikudaginn 30. janúar er dagskráin í höndum sr. Arnar Bárðar Jónssonar. Allir velkomnir.

By |29. janúar 2013 15:05|

Forstjórinn fangelsaður – hvað svo?

Þegar forstjórinn var hnepptur í varðhald gaf hann út yfirlýsingu um að Auðlindaráðið hegðaði sér reiður guð. Í yfirlýsingu forstjórans var vitnað í Matthesuarguðspjall: „Takið af honum talentuna og fáið þeim sem hefur tíu talenturnar...Rekið þennan ónýta þjón út í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.“ Þetta er [...]

By |25. janúar 2013 21:33|

Messa 27. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Dr. Sigurður Árni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt með sr. Toshiki Toma. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |24. janúar 2013 13:59|

Ávaxtarækt í skjóli skóga

Í fyrsta opna húsi ársins 2013 mun dr. Vilhjálmur Lúðvíksson fjalla um ávaxtarækt. Undirtitillinn er: Úr eyðimörk um skóg til aldingarðs með viðkomu í rósagarði!  Vilhjálmur Lúðvíksson er formaður Garðyrkjufélags Íslands. Hann er mikill ræktunarmaður, öflugur leiðtogi félagsins, sérfræðingur í rósum og hugsjónamaður sem drífur aðra áfram. Opna húsið verður [...]

By |21. janúar 2013 22:23|

Messa 20. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |17. janúar 2013 17:51|

A story about a child

Elisabeth Gerle prédikaði í Neskirkju 13. janúar við lok norræna trúfræðiþingsins sem haldið var í Neskirkju. Texti dagsins, úr Markusarguðspjalli, var barnaguðspjalið – hvatning Jesú um að leyfa börnunum að koma, varna eigi – slíkra er guðsríki. Gerle lagði út og tengdi við atburði og ofbeldisverk. Prédikunin, sem flutt var [...]

By |17. janúar 2013 10:19|

Messa 13. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sænski presturinn Elisabeth Gerle predikar og Arnfríður Guðmundsdóttir og Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari. Háskólakórinn syngur undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Sr. Gerle kennir mannréttindasiðfræði við Uppsalaháskóla. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á [...]

By |10. janúar 2013 15:22|

Gerle prédikar í Neskirkju

Sænski presturinn Elisabeth Gerle predikar í Neskirkju sunnudaginn 13. janúar. Sr. Gerle er sérfræðingur sænsku þjóð kirkjunnar í mannréttindasiðfræði sem hún kennir einnig við Uppsalaháskóla. Norrænt fræðaþing verður haldið verður í Neskirkju frá 10-13. janúar og er sr. Gerle einn þátttakenda.

By |7. janúar 2013 23:01|

Messa 6. janúar

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón sr. Sigurvin, Katrín og Ari. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |4. janúar 2013 17:26|