Grund – stórt heimili fyrir lifandi fólk
Krossgötur miðvikudaginn 3. desember kl. 13.30. Heimsókn á Grund við Hringbraut. Við kynnumst heimilisbragnum, syngjum með heimafólki og þiggjum veitingar. Mæting Brávallagötu megin.
Jólaóratorían
Kór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju, ríflega 20 manna barokkhljómsveit og einsöngvarar flytja Jólaóratoríu J.S. Bach í Neskirkju föstudagkvöldið 5. desember kl. 19.30 undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Jóhanna Halldórsdóttir, alt, Þorbjörn Rúnarsson, tenór og Hrólfur Sæmundsson, baritón. Fluttar verða kantötur I, II, III og VI. Aðgangseyrir er [...]
Fyrsti sunnudagur í aðventu
Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, sem er settur sóknarprestur til 1. febrúar 2015, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurvini Lárusi Jónssyni. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea Ösp, [...]
Klippt, teiknað, málað, mótað
Fyrsta sunnudag aðventu, 30. nóvember, kl. 12:00, í kjölfar messu sem hefst kl. 11:00, verður opnuð sýning á verkefnum nemenda við Myndlistaskólann í Reykjavík í safnaðarheimili Neskirkju. Verkefnin eru unnin á yfirstandandi önn og er nemendahópurinn á öllum aldri. […]
Austurvöllur og Eyjar
Krossgötur miðvikudaginn 26. nóvember kl. 13.30. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis segir frá reynsu sinni af starfi fyrir Alþingi, æskuárum í Vetsmannaeyjum og fleiru. Kaffiveitingar.
Kirkjuár og klerkur kvödd
Sameigninlegt upphaf barnastarfs og messu kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Messuþjónar úr hópi sóknarnefndarfólks. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari en þetta er síðasta messa hans í Neskirkju og því kveðjumessa. Sigurður Árni kom til starfa í Neskirkju árið 2004 en [...]
Afmælistónleikar Steingríms 22. nóvember
6. desember næstkomandi verður Steingrímur Þórhallsson organisti fertugur. Af því tilefni verður blásið til tónleika þann 22. nóvember klukkan 17:00, í Neskirkju, og verða flutt tónsmíðar eingöngu eftir Steingrím. Flytjendur, auk Steingríms, verða Hallveig Rúnarsdóttir, Pamela De Sensi, Magnús Ragnarsson Melodia og Kór Neskirkju. Frumflutt verður nýtt verk fyrir kór [...]
Clara Schuman
Krossgötur miðvikudaginn 19. nóvember kl. 13.30. Clara Schuman er kunn í tónlistarsögunni. Áslaug Gunnarsdóttir, píanóleikari kemur og segir frá list og lífi Clöru og leikur verk eftir hana á flygilinn í kirkjunni. Kaffiveitingar.
Fimmtafingur fimmtudagur
Á þessum sjöttu hádegistónleikum Steingríms, og þeim síðustu á þessari önn, er stafurinn B aftur á dagskrá. Á dagskrá er Nun kom der heiden heiland og Christ, der du blast Tag und licht eftir Bach, W. F. 1710 - 1784. Von himmel hoch og Prelúdía í C - dúr eftir Georg Böhm, 1661 - 1733 og [...]
Án kirkjunnar væri íslenskan glötuð
„Eitt af því sem ógnar stöðu íslenskunnar í samtímanum er feimni við trúararf okkar í skólakerfinu og á ég þar ekki við trúboð, heldur uppfræðslu um kristindóm, kirkju og trúarlegt myndmál. Sú kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi er nær ólæs á hinn biblíulega arf og skilur jafnvel [...]