Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Jólaskemmtun barnanna

Föstudaginn 26. desember, annan í jólum, kl. 11.00 verður haldin jólatrésskemmtun í safnaðarheimili Neskirkju. Kátir bræðir munu koma í heimsókn og gefa öllum börnum jólaglaðning frá kirkjunni og skemmta börnunum. Umsjón hefur starfsfólk barnastarfs Neskirkju. Öll eru hjartanlega velkomin, stór sem smá.

By |18. desember 2014 07:29|

Hátíðar-guðsþjónusta, -Hljómur og -kaffi

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00 á öðrum degi jóla. Hljómur, kór eldri borgara syngur. Stjórnandi og organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyirr altari. Eftir guðsþjónustu verður jólasamvera og hátíðarkaffi á Torginu.

By |18. desember 2014 06:36|

Fjórir kórar og fátækt barn

„Í hverju barni sem líður skort á Íslandi birtist skömm okkar sem samfélag og sem kirkja. Hlutverk kirkjunnar er að veita skjól og kirkjan mætir þörfum barna með margvíslegum hætti.” Hugvekja Sigurvins á aðventukvöldi 17. desember er að baki tveimur smellum, bæði á tru.is og sigurvin.annall.is.

By |17. desember 2014 21:00|

Messa fjórða sunnudag í aðventu

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Sigurvin, Andrea, Katrín og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |17. desember 2014 09:09|

Malala og spámenn aðventunnar

„Þegar Malala var spurð á BBC í liðinni viku hvaðan styrkur sinn kæmi nefndi hún ást og stuðning fjölskyldu sinnar og trú sína, þá sömu trú og ofbeldismenn hennar kenna sig við. Við sem hér erum samankomin tilheyrum annari menningu, skyldri en ólíkri trúarhefð og búum langt frá vígstöðvum Talibana, [...]

By |16. desember 2014 13:49|

Aðventukvöld

Aðventukvöld miðvikudaginn 17. desember kl. 20. Barna- og Stúlknakór Neskirkju, Hljómur, kór eldri borgara, og Kór Neskirkju syngja. Stjórnendur Jóhanna Halldórsdóttir og Steingrímur Þórhallsson. Heitt kakó og piparkökur á Torginu.    

By |15. desember 2014 16:10|

Ljósamessa þriðja sunnudag í aðventu

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Stúlknakórinn syngur. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Katrín og Ari. Seld verða kerti fyrir [...]

By |11. desember 2014 12:13|

Aðventa

Krossgötur miðvikudaginn 10. desember kl. 13.30. Síðustu Krossgötur fyrir jól. Aðventusamvera með viðeigandi veitingum! Sr. Jakob Á. Hjálmarsson segir frá englunum og sýnir myndir.

By |9. desember 2014 11:19|

Barnakór og Trölli sem stal jólunum.

Á sunnudag var vel sótt fjölskylduguðsþjónusta í Neskirkju en Barnakór kirkjunnar leiddi söng undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur og við undirleik Ara Agnarssonar. Ein fermingarmóðir, Inga Dóra Björnsdóttir, deildi með okkur upplifun sinni af stundinni í ljóði sem gladdi okkur starfsfólkið mjög. Sem fermingarmamma ég mæti í kirkju. sybbin og pirruð [...]

By |8. desember 2014 15:45|

Fjölskyldumessa 7. desember

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina ásamt starfsfólki sunnudagaskólans, Ara Agnarssyni og Andreu Ösp Andradóttur. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |4. desember 2014 14:19|