Sísýfos, Kristur og leikhús fáránleikans
„Í raun er einungis til eitt heimspekilegt vandamál og það er sjálfsmorð. Sá dómur hvort lífið sé þess virði að lifa því eða ekki, samsvarar því að svara grundvallarspurningum heimspekinnar.” Þannig hefst prédikun skírdags í Neskirkja en þar er því haldið fram að píslarsagan opinberi fáránleika valdsins og leiði til [...]
Fermingarvers
Hér má nálgast þau fermingarvers sem börnin velja sér.
Kvennasaga Neskirkju á vígsludegi
Pálmasunnudagur er kirkjudagur Neskirkju en hún var vígð til þjónustu árið 1957. Í prédikun dagsins var fjallað um kvennasögu kirkjunnar sem hefur fengið minni athygli en sagan af embættum og húsakosti Neskirkju. Þar segir m.a. „Það er kirkjusögulegt stórslys í lífi þessa safnaðar að kvenfélagið hafi lognast útaf og það [...]
Árshátíð NeDó
Þann 17. mars síðastliðinn hélt Æskulýðsfélagið NeDó árshátíð sína í safnaðarheimili Neskirkju. Það var mjög góð mæting enda góður hópur og frábær matur. Veislustjóri var Kristján Ágústs Kjartansson, framkvæmdastjóri ÆSKR. Krakkarnir komu með ungbarnamyndir af sér sem hengdar voru upp á vegg og áttu þau að finna út hver ætti [...]
Saltfiskur
Næsti saltfiskdagur verður n.k. föstudag, 20. mars. Boðið verður upp á suðrænan saltfisk með ofnbökuðum rótarávöxtum. Máltíðin hefst kl. 12 og kostar kr. 1.700.
Messa og barnastarf 22. mars
Sunndaginn 22. mars kl. 11:00 er messa og barnastarf í Neskirkju. Hljómur, kór eldri borgara syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Sr. Sigurvin, Katrín og Ari leiða barnastarfið. Samfélag á Torginu að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.
Clara Schuman
Krossgötur miðvikudaginn 18. mars kl. 13.30. Áslaug Gunnarsdóttir ætlar þessu sinni að kynna fyrir okkur nokkur verka Clöru Schuman með tali og tónum. Kaffiveitingar.
Messa sunnudaginn 15. mars
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Sigurvin Lárus Jónsson æskulýðsprestur fjallar um andúð á múslimum á Íslandi. Muhammed Emin Kizilkaya og sr. Toshiki Toma leiða sameiginlega bæn. Stúlknakór og kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea, [...]
Suðrænn saltfiskur
Næsti saltfiskdagur verður n.k. föstudag, 6. mars. Boðið verður upp á suðrænan saltfisk með ofnbökuðum rótarávöxtum. Máltíðin hefst kl. 12 og kostar kr. 1.700.
Bænahefð
Krossgötur miðvikudaginn 4. mars kl. 13.30. Karl Sigurbjörnsson biskup er kunnur fyrir skrif sín um bænina og mun koma og ræða um bænalífið almennt. Kaffiveitingar.