Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Fermingarungmenni í Vatnaskógi

Það er fríður hópur ungmenna úr fermingarfræðslu Neskirkju sem dvelur nú í Vatnaskógi. Ferðin er lokasprettur fermingarfræðslunnar og helginni lýkur með guðsþjónustu á sunnudag (1. mars), en þann dag er haldinn æskulýðsdagur kirkjunnar. Meðfylgjandi myndir sýna stuðið í skóginum.

By |27. febrúar 2015 23:15|

Kóraveisla á góunni

Kór Neskirkju, Kammerkór Seltjarnarneskirkju, Söngfjelagið, Dómkórinn og Söngsveitin Filharmónía ætla að bjóða upp á hressilega tónleikaveislu laugardaginn 28. febrúar í Seltjarnarneskirkju klukkan 17.  Flutt verða verk frá barrokktímanum til dagsins í dag, íslensk verk í bland við verk frá Eistlandi, Svíþjóð, Japan og Bandaríkjunum. Hver kór syngur nokkur lög og síðan [...]

By |26. febrúar 2015 14:11|

Fjölskylduguðsþjónusta 1. mars

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór og Stúlknakór Neskirkju syngja. Stjórnendur Jóhanna Halldórsdóttir og Steingrímur Þórhallson organisti. Æskulýðsprestur leiðir guðsþjónustuna í samstarfi við Nedó leiðtoga. Samfélga, kaffisopi á Torginu eftir messu.

By |26. febrúar 2015 12:26|

Saltfiskur á föstudögum á föstunni

Föstudagar á föstu eru saltfiskdagar í Neskirkju. Matur er fram reiddur kl. 12. Og svo verður fram að dymbilviku. Suðrænn saltfiskréttur á 1.700 krónur með ofnbökuðum rótarávöxtum.

By |24. febrúar 2015 12:04|

Arfur kirkjufeðranna

Krossgötur miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Sr. Sveinn Valgeirsson nágrannaprestur okkar úr Dómkirkjunni hefur rannsakað kirkjufeður fornkirkjunnar og mun ræða þátt þeirra í mótun tilbeiðslu kirkjunnar. Kaffiveitingar.

By |24. febrúar 2015 11:56|

Dr. Skúli S. Ólafsson settur í embætti

Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson.  Sr. Birgir Ásgeirsson setur dr. Skúla S. Ólafsson í embætti prests í Neskirkju, sem predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi.  Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Andrea, Katrín [...]

By |19. febrúar 2015 11:32|

Saltfiskur á föstu að suðrænum hætti

Hinir árlegu saltfiskdagar Neskirkju hefjast í hádeginu föstudaginn 20. febrúar kl. 12-13 og standa 6 föstudaga í röð. Boðið verður upp á suðrænan saltfisk. Máltíðin verður seld gegn vægu verði. Fastan er tími íhugunar og tiltektar í sál og sinni. Njótum föstunnar og höldum í gamlar hefðir.

By |19. febrúar 2015 09:33|

Krossgötur og pílagrímastígar

Krossgötur miðvikdaginn 18. febrúar kl. 13.30. Ferðasögur frá gönguferðum á helgum slóðum á Norður Spáni og víðar. Margrét Jónsdóttir doktor í spænskum bókmenntum segir frá. Kaffiveitingar.

By |17. febrúar 2015 11:46|

Guð er til

„Þó niðurstaða hinnar trúarlegu leitar sé ólík er ekki hægt annað en að bera virðingu fyrir þeirri viðleitni sem Jón Gnarr lýsir í grein sinni og það mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar. Alhæfingar hans um trú og trúarbrögð eru hinsvegar þess eðlis að þeim ber að svara.” Prédikun Sigurvins [...]

By |15. febrúar 2015 15:22|

Einar Garibaldi – Impression

Sunnudaginn 15. febrúar, í kjölfar messu sem hefst kl. 11 verður sýning Einars Garibaldi, Impression, opnuð á Torginu. Um sýninguna segir Einar: „Fyrirmynd verkanna á sýningunni er að finna á götukorti af Reykjavík, en þar hafa nokkrir áhugaverðir staðir í borginni verið dregnir fram með lítilli þrívíddarmynd. Einn þessara staða er Neskirkja [...]

By |12. febrúar 2015 11:35|