Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Aðalsafnaðarfundur 10. maí

Sunnudaginn 10. maí kl. 12:30 er aðalsafnaðarfundur Nessóknar. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Allir eru velkomnir. 

By |3. maí 2015 09:53|

Að feta hinn fáfarna veg.

Í messu morgundagsins verður fjallað um listina að lifa og ákall Jesú til að feta fáfarinn veg hugrekkis, sannmælgi, kærleika og sjálfsfórnar. Sigurvin Lárus Jónsson prédikar og kór Neskirkju leiðir söng undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Barnastarfið leiða sr. Skúli, Katrín Helga, Andrea, Oddur og Ari undirleikari. Kaffi á Torginu í [...]

By |25. apríl 2015 10:03|

Bjartsýnisbusl á sumardaginn fyrsta.

Á sumardaginn fyrsta verður í sundlaug Vesturbæjar Bjartsýnisbusl á vegum NeDó, æskulýðsfélags Neskirkju. Ókeypis er ofan í laugina og dagskrá hefst kl. 9.30. Ásta Kristensa Steinsen flytur hugleiðingu, Ari Agnarsson þenur nikkuna og NeDó-ingar flytja bænir og stýra leikjum í lauginni. Buslum saman í þeirri bjartsýni sem þarf til að [...]

By |22. apríl 2015 19:47|

Tekist á um Charles Darwin

Í prédikun dagsins var fjallað um arfleifð Charles Darwin og meint átök kirkju og vísinda í gegnum aldirnar. Þar segir m.a.: „Þróunarkenningin er ekki umdeild í náttúruvísindum og nær allar háskólakirkjudeildir hafa samþykkt og stutt grunnhugmyndir hennar. Vísindin lýsa því hvernig að lögmál náttúrunnar starfa, með náttúruvali og samspili erfða, [...]

By |12. apríl 2015 16:16|

… þegar ég minnist þess og veit að þú ert komin af öpum.

Í messu sunnudagsins verður fjallað um vísindi og trú í ljósi kenninga Charles Darwin um þróun tegundanna. Stendur trúnni ógn af uppruna tegundanna eða átti kirkjan þátt í hugmyndasmíðum hans. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Í upphafi verður falleg stúlka borin fram til skírnar. Kór Neskirkju flytur [...]

By |9. apríl 2015 14:46|

Sísýfos, Kristur og leikhús fáránleikans

„Í raun er einungis til eitt heimspekilegt vandamál og það er sjálfsmorð. Sá dómur hvort lífið sé þess virði að lifa því eða ekki, samsvarar því að svara grundvallarspurningum heimspekinnar.” Þannig hefst prédikun skírdags í Neskirkja​ en þar er því haldið fram að píslarsagan opinberi fáránleika valdsins og leiði til [...]

By |2. apríl 2015 21:17|

Kvennasaga Neskirkju á vígsludegi

Pálmasunnudagur er kirkjudagur Neskirkju en hún var vígð til þjónustu árið 1957. Í prédikun dagsins var fjallað um kvennasögu kirkjunnar sem hefur fengið minni athygli en sagan af embættum og húsakosti Neskirkju. Þar segir m.a. „Það er kirkjusögulegt stórslys í lífi þessa safnaðar að kvenfélagið hafi lognast útaf og það [...]

By |29. mars 2015 19:21|

Árshátíð NeDó

Þann 17. mars síðastliðinn hélt Æskulýðsfélagið NeDó árshátíð sína í safnaðarheimili Neskirkju. Það var mjög góð mæting enda góður hópur og frábær matur. Veislustjóri var Kristján Ágústs Kjartansson, framkvæmdastjóri ÆSKR. Krakkarnir komu með ungbarnamyndir af sér sem hengdar voru upp á vegg og áttu þau að finna út hver ætti [...]

By |27. mars 2015 09:30|