Fréttir

Fréttir2017-04-26T12:23:05+00:00

Ljósamessa – þriðji sunnudagur í aðventu

Ljósamessa og barnastarf kl. 11.00. Sameiginlegt upphaf. Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð og tendra ljós. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Söngur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Andrea, Katrín, Oddur og Ari. Seld verða kerti fyrir Hjálparstarf kirkjunnar eftir messu. Samfélag og kaffisopi á [...]

By |10. desember 2015 09:44|

Jólatónleikar Kórs Neskirkju

Fimmtudagskvöldið 10. desember verður blásið til ÓKEYPIS jólatónleika í Neskirkju. Kór Neskirkju, Stúlknakór Neskirkju og Drengjakór Reykjavíkur taka þátt í tónleikunum og flytja fyrir gesti tónlist tengda jólum allt frá þekktum jólasálmum eins og „Nóttin var sú ágæt ein“ yfir í verkin „O Magnum Mysterium“ eftir Morten Lauridsen og „Where [...]

By |7. desember 2015 13:39|

Fjölskylduguðsþjónusta

Fjöldskylduguðsþjónusta verður n.k. sunnudag, 6. desembar kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur, undir stjórn Jóhönnu Halldórsdóttur, og Drengjakór Reykjavíkur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Umsjón starfsmenn barnastarfsins, Andrea, Katrín og Oddur. Prestur Sigurvin L. Jónsson. Samfélag og veitingar á Torginu eftir messu.

By |3. desember 2015 10:36|

Aðventa

Krossgötur miðvikudaginn 2. desember. kl. 13.30. Aðventu- og jóla-tónlist á orgel. Steingrímur Þórhallsson leikur á orgelið og fjallar um verkin sem flutt verða. Kaffiveitingar á Torginu.

By |1. desember 2015 14:33|

Dagskrá Ashura hátíðar

Laugardaginn 28. nóvember verður haldin í Neskirkju hátíð, þar sem ást og virðing mun leysa hatrið af hólmi, en Neskirkja hefur tekið höndum saman við múslima í Félagskapnum Horizon um að halda Ashura hátíð að tyrkneskum sið. Ashura hátíðin á rætur að rekja til sögunnar af örkinni hans Nóa en [...]

By |26. nóvember 2015 20:40|

Hátíðarmessa 29. nóvember

Hátíðarmessa og barnastarf kl. 11. Sameignileg upphaf. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Prestar kirkjunnar, Skúli S. Ólafsson og Sigurvin L. Jónsson, þjóna og prédika saman. Söngur, gleði og gaman í sunnduagskólanum. Umsjón Andrea, Katrín, Oddur og Ari. Loks er boðið upp á kaffisopa á Torginu þar sem allir hittast [...]

By |25. nóvember 2015 13:49|

Kirkjan virkjuð

Krossgötur miðvikudaginn 25. nóvmeber kl. 13.30. Svana Helen Björnsdóttir, er stjórnarformaður og stofnandi fyrirtækisins Stika. Hún situr í kirkjuráði og deilir með okkur skoðunum sínum um kirkjuna út frá sjónarhorni manneskju sem starfar í innsta hring atvinnulífsins. Kaffiveitingar.

By |24. nóvember 2015 12:03|

Fangelsisbréfin eftir Dietrich Bonhoeffer

Nú eru Fangelsisbréfin eftir Dietrich Bonhoeffer loksins komin út í íslenskri þýðingu dr. Gunnars Kristjánssonar. Þau eru gefin út í flokki lærdómsrita Hins íslenska bókmenntafélags. Í tilefni útgáfunnar er boðið til útgáfuhófs í safnaðarheimili Neskirkju, 26. nóvember milli kl. 17 og 18:30. Þar mun dr. Gunnar Kristjánsson segja frá guðfræðingnum [...]

By |23. nóvember 2015 10:44|

As-salamu Alaykum

Í prédikun dagsins var fjallað um hermdarverking í París um liðna helgi og sagt frá Ashura hátíð í Neskirkju sem verður n.k. laugardag. Lærðu meira um hátíðina á Facebook og prédikun dagsins má lesa á tru.is: ,,Komandi laugardag verður haldin í Neskirkju hátíð, þar sem ást og virðing mun leysa [...]

By |22. nóvember 2015 14:01|