Fréttir

Leikskólar á fræðsludegi í Neskirkju

Á laugardaginn 14. apríl sóttu leikskólar í Neskirkjusókn og Dómkirkjusókn fræðsludag hér í kirkjunni og var samtals 18 leikskólum boðið. Dagurinn var vel sóttur og mikil ánægja var með þetta framtak. Við tókum fullt af myndum sem hægt er að skoða á myndasíðunni. […]

By |2007-04-16T11:36:17+00:0016. apríl 2007 11:36|

Japani, Kanadamaður og Jesús Kristur

Þegar búið var að klípa í manninn brutust gleðióp út og sorgarstjarfinn umpólaðist í hinn mesta fögnuð. Maðurinn hafði ekki risið upp úr gröf sinni, heldur úr sorg ættingja sinna. Prédikun Sigurðar Árna í morgunmessunni 15. apríl 2007.

By |2007-04-15T10:21:48+00:0015. apríl 2007 10:21|

Tvær messur og fermt í þeirri síðari

Tvær messur verða í Neskirkju 15 apríl. Í morgunmessunni kl. 11 verður fjallað um Japana, Kanadabúa og Jesú Krist! Eftir hádegi kl. 13.30 verða síðan 16 ungmenni fermd, síðasti fermingarhópurinn þetta vorið. […]

By |2007-04-13T17:08:31+00:0013. apríl 2007 17:08|

Upprisinn er hann…

Í barnamessu á páskadag var frumsýnd páskastuttmynd Krakkaklúbbsins sem ber heitið Upprisinn er hann… Í myndinni léku börnin og túlkuðu píslarsögu Krists frá pálmasunnudegi til páskamorguns. […]

By |2007-04-11T12:48:26+00:0011. apríl 2007 12:48|

Úr grjótinu

"Páskaboðskapurinn fjallar ekki um, að okkur verði bara hjálpað til að lifa eilíflega, hinum megin við gjá og grjót, heldur varðar líka að lifa vel nú - í þessu lífi." Prédikun Sigurðar Árna frá morgunmessu páskadags er undir þessari smellu.

By |2007-04-08T20:25:06+00:008. apríl 2007 20:25|

Tvær messur, tónleikar og morgunverður!

Á páskadag verður mikið um dýrðir í Neskirkju. Messað verður kl. 8 og 11. Barnastarf verður í 11-messunni og páskaeggjaleit á kirkjulóðinni. Á milli messa verða tónleikar organistans og á Torginu verður reitt fram kaffi og nýbakað brauð, álegg og annað góðgæti. Og svo mun jafnvel hljóma páskahlátur! […]

By |2007-04-07T10:17:13+00:007. apríl 2007 10:17|