Fréttir

Jesúborð og myndir

Skírdagur er mikill tákndagur. Í textum og atferli dagsins eru tákn. Í skírdagsmessunni voru íhugaðar borð- og kvöldmáltíðarmyndir. Hægt er að lesa hugleiðinguna og líka skoða myndirnar undir þessari smellu.

By |2007-04-07T00:00:00+00:007. apríl 2007 00:00|

Dagskrá með SÁÁ

Á föstudaginn langa kl. 14 verður flutt í Neskirkju „Dagskrá um þjáningu og lausnir.“ Byggist hún upp á lestrum úr píslarsögu Krists og Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar auk tónlistar. Meðal lesara verður Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. […]

By |2007-04-06T00:00:00+00:006. apríl 2007 00:00|

Brauðið sem vér brjótum

“Þetta er gott brauð, sem þið notið við altarisgönguna” var sagt í Neskirkju eftir skírdagsmessu. Það var ósýrt, þunnt, pönnusteikt brauð og þannig brauð hefur Jesús líklega brotið og útdeilt í síðustu kvöldmáltíðinni. Upppskriftin er einföld. […]

By |2007-04-05T00:00:00+00:005. apríl 2007 00:00|

Tákn, borð og skírdagsmessa

Táknmál skírdags er ríkulegt. Myndlistamenn hafa túlkað síðustu máltíð Jesú með ólíkum hætti. Í skírdagsmessunni í Neskirkju kl. 21 verður varpað upp skyggnum af myndlistaverkum á altarisvegg til íhugunar. […]

By |2007-04-04T11:42:23+00:004. apríl 2007 11:42|

Fjölmenni í Neskirkju á afmælishelgi!

Á annað þúsund manns sótti Neskirkju um helgina en fermingar fóru fram bæði laugardag og sunnudag og svo var sérstök hátíðarmessa í tilefni af 50 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Hátíðin hófst með tákngöngu frá syttunni af Sæmundi fróða Sigfússyni við Háskóla Íslands en Nessöfnuður hafði aðstöðu til helgihalds á fyrstu starfsárum sínum í kapellu Háskólans og [...]

By |2007-04-01T16:03:43+00:001. apríl 2007 16:03|

Biskupsmessa á fimmtugsafmæli

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, prédikar í Neskirkju á pálmasunnudag kl. 11. Kirkjan á 50 ára afmæli, var vígð á pálmasunnudegi árið 1957. Allir velkomnir, ungir og aldnir. […]

By |2007-03-31T00:00:00+00:0031. mars 2007 00:00|

Fermingar um helgina

Fermingar verða í kirkjunni laugardaginn 31. mars, kl. 11.00 og 13.30, og á pálmsunnudag, 1. apríl, kl. 13.00. Nöfn fermingarbarna, sem fermast þessa daga, er hægt að nálgast hér!

By |2007-03-30T18:03:35+00:0030. mars 2007 18:03|

Árshátíðin að byrja!

Hvernig á að halda upp á afmæli? Í stað afmælis í einn dag verður hátíð Neskirkju í heilt ár. Kirkjuafmæli er tilefni til að fagna vel og lengi. Á pálmasunndegi byrjar árshátíð Neskirkju. Guðsríkið er allra, öllum er boðið, allir eru velkomnir. […]

By |2007-03-30T00:00:00+00:0030. mars 2007 00:00|

Síðasti saltfiskdagurinn!

Föstudaginn 30. mars verður síðasta saltfiskmáltíðin að þessu sinni reidd fram í hádeginu. Guðfræðinemar koma í heimsókn og flytja stutta dagskrá. Allir velkomnir!

By |2007-03-29T00:00:00+00:0029. mars 2007 00:00|

50 ára vígsluafmæli Neskirkju!

Á pálmasunnudag, 1. apríl kl. 11, verður þess minnst að Neskirkja var vígð þann sama sunnudag árið 1957. Hátíðarmessa verður kl. 11. Meiri upplýsingar munu birtast síðar í vikunni. Fylgstu með og taktu þátt!

By |2007-03-28T09:56:17+00:0028. mars 2007 09:56|