Fréttir

Týndur – fundinn

Í nágrenni þínu er pirrað tölvuleikjafólk. Þegar tölvunni er kippt úr sambandi verða uppþotin. Er krakkinn orðinn vitlaus? Er hér komin nútímaútgáfa af sögu Jesú? Týndi sonurinn í tölvuheimum, týnda dóttirin á nethögum? Prédikun sr. Sigurðar Árna er hér.

By |2017-04-26T12:23:53+00:0024. júní 2007 16:02|

Týndur sonur og sálmar

Í messunni 24. júní verður íhuguð líkingasaga Jesú um týnda soninn, öfund bróður hans og sérkennilegan föður þeirra. Hvers konar fjölskylda var þetta og hverjar eru hliðstæðurnar í samtíðinni? Messan hefst kl. 11 og kaffi eftir messu. […]

By |2007-06-22T16:58:22+00:0022. júní 2007 16:58|

Vel heppnað leikjanámskeið og annað í gangi.

Fyrsta leikjanámskeið sumarsins er lokið og var ótrúlega skemmtilegur hópur sem það sótti. Búið er að setja helling af myndum frá námskeiðinu á myndasvæði æsklýðsstarfsins. Nú er í fullum gangi seinna júnínámskeiðið og eru 21 barn hjá okkur í kirkjunni þessa viku. Við minnum á að skráning er hafin fyrir námskeið III og IV sem [...]

By |2007-06-20T12:13:40+00:0020. júní 2007 12:13|

Uppskrift að þjóðarsælu

Messa, þjóðhátíðardaginn 17. júní kl. 11. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Textar dagsins með loforðum og heilræðum eru hér ef þú vilt skoða þá og íhuga. […]

By |2007-06-15T11:33:02+00:0015. júní 2007 11:33|

Mesti heiður í lífinu

“Það er nú einn það mesti heiður sem manni hlotnast í lífinu að starfa í sóknarnefnd!” sagði Margrét Sigurðardóttir þegar hún var spurð hvort hún gæfi kost á sér. “Já, já, ég er til“ sagði hún og svo var hún á aðalfundi sóknarinnar kosin til sóknarnefndarstarfa ásamt fjórum öðrum. […]

By |2007-06-14T11:45:59+00:0014. júní 2007 11:45|

Aðalsafnaðarfundur

Aðalsafnaðarfundur Nessóknar var haldinn sunnudaginn 10. júní eftir messu safnaðarins. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Skýrsla um starfsemi safnaðarins lögð fram og reikningar. Einnig var kosið í sóknarnefnd. […]

By |2007-06-12T10:01:30+00:0012. júní 2007 10:01|

Ég ætla að kaupa þessi augu!

Ránsaugu sjá ekki líf, en Guðsaugun sjá mannfólk og skyldur til góðs. Á hverju degi þurfum við að velja milli Mammons og Guðs. Horfðu vel í kringum þig og vertu ekki heimskingi. Prédikun sr. Sigurðar Árna 10. júní er að baki þessari smellu.

By |2007-06-10T12:51:33+00:0010. júní 2007 12:51|

Fjármunir, siðferði og sjón

Í messunni á sunnudag verða íhuguð tengsl fjármuna og siðferðis. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari auk sr. Arnar Bárðar Jónssonar. Eftir veglegar hádegisveitingar verður aðalfundur Nessóknar haldinn. […]

By |2007-06-08T15:04:11+00:008. júní 2007 15:04|

Aðalsafnaðarfundur Nessóknar

Aðalsafnaðarfundur Nesskóknar verður haldin sunnudaginn 10. júní kl. 12.30 (eftir messu). Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

By |2007-06-07T12:43:26+00:007. júní 2007 12:43|