Fréttir

Leikjanámskeið sumarið 2007

Skráning er hafin á hin árlegu sumarnámskeið Neskirkju. Námskeiðið er ætluð börnum á aldrinum 6-10 ára (fædd 1997-2001) og munu Sigurvin Jónsson guðfræðingur og Sunna Dóra Möller guðfræðinemi hafa umsjón með námskeiðunum. Haldin verða fjögur námskeið, ein vika í senn, og eru öll börn fædd 1997-2001 velkomin á námskeiðin. […]

By |2007-06-07T00:00:00+00:007. júní 2007 00:00|

Fyrirbænir

Á miðvikudögum eru fyrirbænamessur kl. 12.15 þar sem beðið er fyrir sjúkum og bágstöddum. Messan tekur um 20 mínútur. Hægt er að koma fyrirbænarefnum til prestanna með tölvupósti, símtali eða skriflega við upphaf messunnar.

By |2007-06-04T18:53:27+00:004. júní 2007 18:53|

Að lesa eða hlusta

Vakin er athygli á að hér hægra megin á frosðíðunni er hægt að fara inn á annála okkar prestanna þar sem margar ræður eru birtar í textaformi og stundum einnig sem hljóðskrár.

By |2007-06-04T18:50:25+00:004. júní 2007 18:50|

Hefur þú fyllst heilögum anda?

“Mamma, hefur þú fyllst Heilögum Anda?” Hún svaraði: “Já, einu sinni, í kirkju í Frakklandi. Ég varð fyrir svo sterkri reynslu, að það hlýtur að hafa verið Andi Guðs.“ Prédikun sr. Sigurðar Árna á annan hvítasunnudag fjallar um verkan Heilags Anda og er að baki þessari smellu.

By |2007-05-29T11:44:51+00:0029. maí 2007 11:44|

Annar í hvítasunnu

Messa kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Steingrímur Þórhallsson organisti. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.

By |2007-05-26T15:48:56+00:0026. maí 2007 15:48|

Tungur í Neskirkju

Hátíðarmessa verður í Neskirkju á hvítasunnudag kl. 11. Í messunni verða lesnir ritningarlestrar á framandi tungum. Er með því vísað til reynslu manna í árdaga þegar fagnaðarerindið heyrðist flutt á mörgum tungum. […]

By |2007-05-24T14:23:28+00:0024. maí 2007 14:23|

Viltu hlusta eða lesa?

Prédikun sr. Arnar Bárðar Eilífð í nútíð og framtíð frá 20. maí 2007 er hér hvort sem þú vilt hlusta eða lesa.

By |2007-05-23T08:59:00+00:0023. maí 2007 08:59|

Velheppnuð vorferð í haustveðri

Veðurguðirnir voru okkur ekki hliðhollir í annars velheppnaðri vorferð sunnudagaskólans í gær. Við fórum eins og leiðin lá til Akranes þar sem við skoðuðum safnasvæðið og fengum leiðsögn safnvarðar um þá muni sem þar eru varðveittir. Eftir skoðunarferðina leituðum við skjóls frá rigningu, roki og hagléli inní á nýbyggðum gerfigrasvelli bæjarins og slógum þar upp [...]

By |2007-05-21T14:09:39+00:0021. maí 2007 14:09|