Ertu nýbúin/n að eignast barn?
Í vetur verða foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10-12 í safnaðarheimilinu. Fyrsti morguninn var 13. september. Boðið er upp á kaffi og eitthvað með. […]
Í vetur verða foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10-12 í safnaðarheimilinu. Fyrsti morguninn var 13. september. Boðið er upp á kaffi og eitthvað með. […]
Í anda Jesú Krists viljum við menntun og stöðuréttingu kvenna til jafns við karla. Í anda Jesús Krists mótmælum við limlestingum á konum hvar sem er í heiminum. Látum feðraveldið detta. Prédikun sr. Sigurðar Árna er í rafpostillu þjóðkirkjunnar.
Betaníusysturnar Marta og María taka ákvörðun um hlutverk sín í guðspjalli næsta sunnudags. Svo kemur Ayaan Hirsi Ali við sögu í útleggingunni. Jesús á erindi við þær allar og okkur líka. Hvert er hlutverk kvenna og hver er afstaða okkar? Getum við lært eitthvað nýtt í Jesúafstöðunni? […]
Messa og barnastarf kl. 11. Börnin byrja með fullorðna fólkinu í messunni en fara fljótlega í safnaðarheimilið þar sem þau fá fræðslu við sitt hæfi út frá splunkunýju kennsluefni. Kammerkór Háskólans í Varsjá, Cellegium Musicum, syngur. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffi og spjall [...]
Núna á fimmtudagskvöldið 6. september klukkan 20:00 mun Kór Neskirkju kynna vetrardagskránna fyrir áhugasömu fólki sem jafnvel langar til að syngja með kórnum. Í desember flytur kórinn óratoríuna Lallegro, penseroso ed moderato eftir G. F. Handel og fékk nýverið glæsilegan styrk frá Baugi sem mun gera kórnum kleift að hafa stóra hljómsveit. Einnig verður farið [...]
Viltu ná sambandi? Ekkert gjald meðan beðið er hjá símanum og ekki heldur í kirkjunni. Í forkirkju Neskirkju eru ljósaker og margir koma til að kveikja á kertum og njóta kyrrðarstundar. Fyrirbænamessa er á miðvikudögum kl. 12.15. […]
Er ástin bara fyrir ástvini? Eða er ástin fyrir fleiri, jafnvel óvini? Getur verið að elskustefna Fjallræðunnar sé leiðarvísir fyrir engla en ekki venjulegt fólk í tvíbentum heimi? Prédikun Sigurðar Árna 2. september er undir þessari smellu.
Barnastarf Neskirkju hefst sunnudaginn 2. september. Börnin hefja samveruna með fullorðna fólkinu í kirkjunni, taka þátt í söng og helgildi. Eftir lestur lexíu og pistils er kveikt á barnamessukertinu og unga fólkið fer til sinna starfa í safnaðarheimilinu. […]
Á miðvikudögum eru fyrirbænamessur kl. 12.15 þar sem beðið er fyrir sjúkum og bágstöddum. Messan tekur um 20 mínútur. Hægt er að koma fyrirbænarefnum til prestanna með tölvupósti, símtali eða skriflega við upphaf messunnar.
Næsta sunnudag, 26. ágúst, mun sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur, þjóna fyrir altari og prédika í Neskirkju. Félagar úr kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, kantors. Meðhjálpari er Úrsúla Árnadóttir. Aðstoð við útdeilingu Hanna Johannesen. Messan hefst kl. 11 og allir eru velkomnir.