Fréttir

Drauma vitjað

Hvað er á bak við drauminn um “ógeðslega flotta íbúð,” kaup á fótboltaliði og vonina um að verða vel launaðir lögfræðingar? Stókostlegir lífsdraumar unga fólksins voru kortlagðir og ræddir í prédikun sr. Sigurðar Árna 19. ágúst. Til að lesa prédikunina smelltu hér.

By |2007-08-20T12:38:31+00:0020. ágúst 2007 12:38|

Söngur fermingarbarna

Besti hópurinn þetta árið er rauði hópurinn og sungu þau glæsilega eins og hægt er að heyra á eftirfarandi linkum. Sálmarnir sem æfðir voru heita Ástarfaðir himinhæða og Eigi stjörnum ofar.

By |2007-08-19T12:25:46+00:0019. ágúst 2007 12:25|

Draumamessa í Neskirkju

Í messunni 19. ágúst verða draumar fólks ræddir í prédikun og fyrir þeim verður beðið. Fermingarbörn ganga til altaris í fyrsta sinn. Aðstandendum þeirra er boðið að taka þátt í veislu safnaðar og himins. Messan hefst kl. 11 og allir eru velkomnir. […]

By |2007-08-17T10:13:15+00:0017. ágúst 2007 10:13|

Fjör í fræðslunni

Neskirkja fylltist af ungmennum í morgun. Fermingarfræðslan var að hefjast. Hátt í eitt hundrað ungmenni komu í kirkjuna. Sumarnámskeiðið stendur í fimm daga og er fyrsti hluti fermingarfræðslunnar sem stendur heilan vetur. Og fermingarbörnin í Neskirkju eru stórkostleg, nálgast verkefnin með opnum en skörpum huga. […]

By |2007-08-13T21:41:13+00:0013. ágúst 2007 21:41|

Messa 12. ágúst kl. 11

Í messunni verða þessir textar íhugaðir. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Organisti Steingrímur Þórhallsson.Prédikunina er hægt að lesa og hlusta á hér. […]

By |2007-08-10T21:20:39+00:0010. ágúst 2007 21:20|

Messa 5. ágúst kl. 11

Séra Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Neskirkju leiða sönginn. Organisti Magnús Ragnarsson.Prédikun dagsins er að finna hér. […]

By |2007-08-04T18:52:21+00:004. ágúst 2007 18:52|

Örfá sæti laus á leikjanámskeið ágústmánaðar

Skráning er hafin á síðari tvö leikjanámskeið Neskirkju sem verða í viku 31 (Námskeið III: 30. Júlí-03. Ágúst) og viku 32 (Námskeið IV: 07.-10. Ágúst). Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 6-10 ára (fædd 1997-2001) og hafa Sigurvin Jónsson guðfræðingur og Sunna Dóra Möller guðfræðinemi umsjón með þeim ásamt hópi unglinga. Námskeiðið er hálfan daginn [...]

By |2007-07-24T11:16:00+00:0024. júlí 2007 11:16|