Fréttir

Best heppnaða útrásin

Mörg úthlaup Íslendinga hafa mistekist hrapalega, nokkur hafa lukkast, en best heppnaða útrás Íslendinga er íslenska kristniboðið. Prédikun sr. Sigurðar Árna 9. nóvember 2008 er að baki þessari smellu.

By |2008-11-10T11:07:53+00:0010. nóvember 2008 11:07|

Sunnudagsmessa og barnastarf kl. 11.

Kristniboðsdagur þjóðkirkjunnar. Gídeonfélagar kynna biblíudreifingarfélag sitt. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Döllu Þórðardóttur. Messuþjónar aðstoða. Börninn byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður, leikir og gleði. Umsjón Sigurvin, María, Andrea og Ari. Samfélag á Torginu eftir messu.

By |2008-11-08T00:00:00+00:008. nóvember 2008 00:00|

Heródesarkjúklingur

Hani Pílatusar er frægasti hani veraldar. En hæna Heródesar er síður kunn en hefur örgglega verið matreidd með kúnst fagurkerans. Hér er uppskrift að tilgátu-Heródesarkjúkling sem áttatíu manns nutu á Torginu 6. nóvember. „Þetta ætla ég að elda um helgina“ sögðu nokkur. Presturinn mælir með því og uppskriftin fer hér á eftir. […]

By |2008-11-07T15:00:16+00:007. nóvember 2008 15:00|

Sr. Guðbjörg kynnir sáttamiðlun

Opin hús Neskirkju njóta spennandi dagskrár. Miðvikudaginn 5. nóvember kemur sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir og segir frá nýjum hugmyndum og aðferðum að leita sátta í erfiðum deilumálum. Dagskrá opins húss hefst kl. 15 með kaffiveitingum á Torginu. Allir velkomnir.

By |2008-11-04T20:42:15+00:004. nóvember 2008 20:42|

Heródesarkjúklingur

Hvað skyldi kóngurinn Heródes hafa haft á borðum? Í fimmtudagshádeginu eru matarhefðir Biblíunnar kynntar á Torgi Neskirkju. Sr. Sigurður Árni Þórðarson kynnir og eldar matinn ásamt Ólafíu Björnsdóttur. 6. nóvember verður á borðum kjúklingaréttur Heródesar! Allir velkomnir. […]

By |2008-11-04T20:16:09+00:004. nóvember 2008 20:16|

Ekkert gjald er tekið meðan beðið er

Alla miðvikudaga eru bænamessur í Neskirkju. Þær hefjast kl. 12,15 með ritingarlestri og íhugun. Eftir bænir er síðan altarisganga. Hægt er að koma fyrirbænum til prestanna eða starfsfólks kirkjunnar. Allir velkomir.

By |2008-11-04T20:11:48+00:004. nóvember 2008 20:11|

Söfnun fermingarungmenna fyrir Hjálparstarf Kirkjunnar.

Á morgun þriðjudag munu ungmenni úr fermingarundirbúningi Neskirkju ganga í hús í Vesturbænum og safna fé fyrir hjálparstarfi kirkjunnar. Ungmennin mæta í Neskirkju kl. 17.30 og fá fæði og fræðslu áður en þau hefja söfnunina. Vesturbærinn er þekktur fyrir að taka vel í þessa árlegu söfnun og við kunnum sóknarfólki kærar þakkir fyrir það.

By |2008-11-03T11:29:52+00:003. nóvember 2008 11:29|

Messa og barnastarf 2. nóv kl. 11

Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Umsjón með barnastarfi hafa Sunna Dóra, María, Andrea og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu. Fyrirbæn með smurningu og handayfirlagningu upp úr [...]

By |2008-11-01T17:39:12+00:001. nóvember 2008 17:39|