Messa kl. 11:00. Sönghópur Marteins syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffisopi á torginu að messu lokinni. Í stólræðu verður lagt út af orðum Postulasögunnar: ,,En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál og enginn þeirra taldi neitt vera sitt er hann átti heldur höfðu menn allt sameiginlegt.“ Fer vel á því nú þegar samfélag okkar hefur kosið nýjan forseta.