Fréttir

Vel heppnaður æskulýðsdagur

Rúmlega 300 manns mættu til æskulýðsmessu í gær og brögðuðu á Lengstu Skúffuköku Vesturbæjar í messukaffinu. Kakan varð á endanum 9.1 metri sem setur markið hátt fyrir næsta ár. Stuttmyndin sem var sýnd í messunni er nú aðgengileg á myndasíðu barnastarfsins, sem og myndir af kökunni. Prédikun umsjónarmanns Barna- og Unglingastarfs Neskirkju er hægt að [...]

By |2009-03-02T10:54:44+00:002. mars 2009 10:54|

Kökubökuvaka fyrir æskulýðsdaginn

Krakkar úr Graduate NeDó vöktu aðfararnótt laugardags til að baka Lengstu skúffuköku Vesturbæjar sem verður boðin kirkjugestum á æskulýðsdeginum á sunnudag. Kakan varð rúmlega 8 metra löng og er það rúmum metra lengra en í fyrra. Eftir að verkinu lauk var brugðið á leik og þreytt ungmenni yfirgáfu kirkjuna um áttaleytið á laugardegi. Myndir af [...]

By |2009-02-28T06:30:23+00:0028. febrúar 2009 06:30|

Kraftaverk

"Segjum að þú farir héðan úr saltfisknum á eftir og sinnir því sem þú ætlaðir þér í dag. Þegar að þú síðan leggst á koddann í kvöld sofnar þú værum svefni. Á meðan að þú sefur á sér stað kraftaverk." Sr. Guðbjörg talaði um sátt á fyrsta saltfiskdegi. Borðræða hennar er að baki smellunni.

By |2009-02-27T16:48:52+00:0027. febrúar 2009 16:48|

Æskulýðsdagurinn í Neskirkju

Sunnudagurinn 1. mars er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Þann dag verður fjölskyldumessa í kirkjunni þar sem börn og unglingar skipa veigamikið hlutverk. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar og umsjónarmaður barnastarfsins, Sigurvin Jónsson, prédikar ásamt börnum úr starfinu. Barnakór Neskirkju mun flytja lög, sýnd verður stuttmynd sem gerð var í unglingastarfinu og unglingaleiðtogar kirkjunnar skipa messuhóp. Eftir messu verður [...]

By |2009-02-26T10:26:12+00:0026. febrúar 2009 10:26|

Opið hús miðvikudaginn 25. febrúar

Opið hús kl. 15. Sjálfsrækt. Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um bók sína: Móti hækkandi sól. Í bókinni segir m.a.: Þú ert þitt eigið fyrirtæki sjáðu um sjálfa/n þig eins og þú sæir um fyrirtækið þitt. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi.

By |2009-02-25T00:00:00+00:0025. febrúar 2009 00:00|

Saltfiskur og borðræða föstudaginn 27. febrúar

Fastan er tími íhugunar. Val á hráefni í föstumat hefur ekki aðeins stjórnast af þörfum líkamans heldur líka hins innri manns. Í þeim anda verður saltfiskur framreiddur í Neskirkju á föstudaginn kemur. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir mun ræða um sáttaferli í fyrstu borðræðunni. Máltíð hefst um kl. 12. […]

By |2009-02-24T23:44:31+00:0024. febrúar 2009 23:44|

Hvenær drepur maður mann? 5. orðið

Jesú spyr okkur hvort við hugsum vel og fallega um fólk, okkur sjálf og samfélag okkar. Spurningin varðar hvort drep sé að byrja innan í okkur, sálardrep. 22. febrúar ræddi sr. Sigurður Árni um fimmta boðorðið. Prédikun er að baki smellunni.

By |2009-02-23T15:03:42+00:0023. febrúar 2009 15:03|

Morð í messunni – síðan hrun – svo von

Rætt verður um fimmta boðorðið og merkingu þess í messunni 22. febrúar. Kór Neskirkju verður í Skálholti í æfingabúðum og í þeirra stað syngja félagar í Schola Cantorum. Organisti Hörður Áskelsson. Prestar Toshiki og Sigurður Árni. Messuþjónar Kári, Auður og Svanur. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Barnastarfið: Sigurvin, María, Andrea og [...]

By |2009-02-19T23:51:52+00:0019. febrúar 2009 23:51|