Krakkar úr Graduate NeDó vöktu aðfararnótt laugardags til að baka Lengstu skúffuköku Vesturbæjar sem verður boðin kirkjugestum á æskulýðsdeginum á sunnudag. Kakan varð rúmlega 8 metra löng og er það rúmum metra lengra en í fyrra. Eftir að verkinu lauk var brugðið á leik og þreytt ungmenni yfirgáfu kirkjuna um áttaleytið á laugardegi. Myndir af vökunni eru á myndasvæði BaUn en við hvetjum sem flesta til að koma og bragða á kökunni á sunnudag. Björnsbakarí styrkti félagið um hráefni í kökuna.