Fréttir

Opið hús

Miðvikudaginn 23. september mun dr. Pétur Pétursson prófessor og sóknarnefndarmaður í Nessöfnuði koma í Opið hús og fjalla um starf fríkirkjusafnaða, tilgang þeirra, áherslur og þróun. Kaffiveitingar á Torginu í upphafi kl. 15. Allir velkomnir.

By |2009-09-22T10:11:06+00:0022. september 2009 10:11|

Messa kl. 11 – Ertu Mörtutýpa, Maríutýpa eða báðar?

Messa kl. 11 sunnudaginn 20. sept. Frábært barnastarf á sama tíma í umsjá Sigurvins, Maríu og Ara. Brúður og leikir. Börnin mála bænasteina. Sjá næstu frétt hér fyrir neðan. Örn Bárður messar ásamt messuþjónum, félögum úr Háskólakórnum og Steingrími organista. Súpa, brauð og kaffi á Torginu eftir messu. Rætt verður um tvær heimsfrægar systur og mann [...]

By |2017-04-26T12:23:50+00:0018. september 2009 20:53|

Málum bænasteina í sunnudagaskólanum!

Í Sunnudagaskólanum í Neskirkju sunnudaginn 20 sept. ætlum við að mála bænasteina sem við söfnuðum í fjöruferð síðasta sunnudag. Steinarnir verða síðan notaðir í vetur sem bænasteinar. Komið því ekki í of fínum fötum! Allir velkomnir! Sigurvin og sunnudagaskólateymið.

By |2009-09-18T13:46:30+00:0018. september 2009 13:46|

Biblíumatur í Neskirkju

Baunamáltíðin sem breytti öllu! Sigurvin Jónsson var með erindi við borðhald á Biblíumat í Neskirkju föstudaginn 18. september um örlagaríka baunamáltíð þeirra tvíburabræðra Jakobs og Esaú. Erindið er aðgengilega á annáli Sigurvins.

By |2017-04-26T12:23:50+00:0018. september 2009 13:43|

Messa 20. september

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Háskólakórnum leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédkar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður og gleði. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu eftir messu.

By |2009-09-17T14:50:18+00:0017. september 2009 14:50|

Biblíumatur – Sagan af dýrasta baunadiski sögunnar

Föstudaginn 18. september verður eldaður Biblíumatur í hádeginu í Neskirkju. Máltíðin hefst kl.12:00 með stuttri kynningu og sögu á rétti dagsins, sem er Baunadiskurinn bygg og linsubaunir. Sigurvin Jónsson, cand.theol. annast kynningu og fræðslu. Allir velkomnir.

By |2009-09-17T14:47:43+00:0017. september 2009 14:47|

Messan?

Þriðjudaginn 15. september hefst þriggja kvölda námskeið um messuna. Kennt verður þrjá þriðjudaga í röð og hefst námskeiðið kl. 18 og stendur til kl. 20.30. Boðið verður upp á léttan kvöldverð. Kennarar sr. Örn Bárður Jónsson, sr. Kristján Valur Ingólfsson, Sigurþór Heimisson og Rúnar Reynisson. Hver er saga messunar? Hvers vegna er hún byggð upp [...]

By |2009-09-15T09:39:00+00:0015. september 2009 09:39|

Pí, börn og trú

Er trúin orðin galdra- eða töfratrú, trú að Guð sé einhvers konar hinsta björgunarlið, þegar annað hefur brugðist? Guð, skapari, lausnari og andi heimsins sem hálmstrá! Hvaða trú er það annað en töfratrú? Prédikun Sigurðar Árna 13. september 2009 er að  baki smellunni.

By |2009-09-13T19:07:55+00:0013. september 2009 19:07|

Allir í stígvélum í sunnudagaskólann.

Í sunnudagaskólanum í dag ætlum við að rölta niður á Ægisíðu og safna steinum fyrir sunnudagaskólann en þeir verða notaðir sem bænasteinar í vetur. Endilega koma í stígvélum í dag. Sigurvin og María.

By |2009-09-13T09:48:02+00:0013. september 2009 09:48|

Námskeið haustið 2009

Eitthvað fyrir þig? Fræðsla á þriðjudögum í Neskirkju kl. 18.00 – 20.30. Eftirtalin fræðslutilboð verða í boði í Neskirkju fram að áramótum: […]

By |2009-09-10T16:15:52+00:0010. september 2009 16:15|