Fréttir

Samskot í messu til HK

Bestu þakkir til ykkar sem létuð fé af hendi rakna í messunum 4. og 11. okt. s.l. en þá söfnuðust kr. 76.093.- sem skilað hefur verið Hjálparstarfs kirkjunnar þar sem þörfin er mikil.

By |2009-10-12T07:32:50+00:0012. október 2009 07:32|

Neskirkja bar sigur úr býtum á Þraukarakeppni ÆSKR

Það var öflugur hópur krakka úr æskulýðsfélaginu Fönix sem tók þátt í Þraukakeppni ÆSKR sl. fimmtudag en strákarnir úr hópnum skipuðu sigurliðið. Myndir af viðburðinum eru á myndasíðu BaUN en myndbandið inniheldur viðtöl við glaðbeitta sigurvegara.

By |2017-04-26T12:23:49+00:003. október 2009 14:08|

Messa sunnudaginn 4. október

Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson þjónar fyrir altari ásamt Þórhildi Ólafs. Sigurvin Jónsson umsjónamaður barna- og unglingastarfs Neskirkju prédikar. Messuþjónar aðstoða. Í messunni verða tekin samskot til styrktar innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar. Barnastarfið á sama tíma í umsjón í umsjón María og Ari. Sögur, söngur, [...]

By |2009-10-02T15:30:15+00:002. október 2009 15:30|

Gnægð mynda úr Barna- og Unglingastarfi Neskirkju

Á myndasíðu barnastarfsins er nú aðgengileg fjöldi mynda frá upphafi annarinnar. Frá Sunnudagaskólanum, skemmtilegum Fönix fundum, fordómafræðslu í Skálholti, haustlitaferð Krakkaklúbbsins og ferð Undralands, frístundaheimilis Grandaskóla, í Seltjarnarneskirkju. Njótið þess að bera baunaspírurnar í barnastarfinu augum. Sigurvin Jónsson umsjónarmaður BaUN.

By |2017-04-26T12:23:49+00:001. október 2009 15:19|

Foreldramorgnar

Fimmtudaginn 1. október kemur Ólafur Grétar Gunnarsson, félagsráðgjafi, og kynnir fræðslu fyrir foreldra. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10.00 - 12.00

By |2009-09-30T15:53:59+00:0030. september 2009 15:53|

Að vera Vesturbæingur

Í Opnu húsi miðvikudaginn 30. september kemur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir, dómkirkjuprestur, í heimsókn. Mun hún veiða skemmtiefni úr minningasjóði sínum. Opið hús byrjar kl. 15.00 með kaffiveitingum á Torginu.

By |2009-09-30T09:38:24+00:0030. september 2009 09:38|

Séra Þórhildur Ólafs þjónar næstu 9 mánuði

Biskup Íslands hefur ákveðið að séra Þórhildur Ólafs þjóni í Neskirkju frá 1. október til loka júní 2010 en séra Sigurður Árni Þórðarson verður í námsleyfi á sama tíma. Þórhildur þjónaði s.l. vetur í afleysingu í Fella- og Hólakirkju í Breiðholti og var áður prestur í Hafnarfirði. Fimm sóttu um að fá að leysa af.

By |2017-04-26T12:23:50+00:0028. september 2009 21:38|

Messa sunnudaginn 27. september

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Barnastaf á sama tíma í umsjón Sigurvins, Maríu og Ara. Söngur, leikir, sögur og brúður. Súpa, brauð, kaffi og samfélag eftir messu á Torginu. Ræðu Arnar Bárðar er hægt að [...]

By |2009-09-25T16:51:16+00:0025. september 2009 16:51|

Kjúklingur Maríu frá Nasaret

Síðasta Biblíumáltíðin að þessu sinni verður fram reidd í hádeginu föstudaginn 25. sept. Á matseðlinum verður Kjúklingur Maríu frá Nasaret sem Ólafía Björnsdóttir matreiðir. Örn Bárður býður fólk velkomið með stuttu ávarpi og fræðslu og síðan njóta matargestir máltíðar sem án efa mun kitla bragðlaukana.

By |2017-04-26T12:23:50+00:0024. september 2009 21:13|