Fréttir

Messa 13. september

Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuþjónar aðstoða. Börnin byrja í kirkjunni en fara síða í safnaðarheimilið. Söngur, sögur, brúður og fleira. Umsjón Sigurvin, María og Ari. Súpa, brauð, kaffi og samfélag á Torginu [...]

By |2009-09-10T15:18:05+00:0010. september 2009 15:18|

Fíkjulamb er biblíumáltíð dagsins!

Föstudaginn 11. september verður eldaður Biblíumatur í hádeginu í Neskirkju. Kynning verður á rétti dagsins, sem er fíkjukryddað lambakjöt, matarhefðum og matarmerkingu Biblíunnar kl. 12 og síðan verður matur borinn fram. Allir velkomnir. Ríkisútvarpið var með pistil um biblíumat 4. september og hægt að nálgast að baki smellunni.

By |2009-09-10T14:56:25+00:0010. september 2009 14:56|

Hvernig væri að koma í messu?

Messa 13. september kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Toshiki Thoma þjónar fyrir altari og sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar. Textar dagsins eru baki þessari smellu. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu. Allir velkomnir.

By |2009-09-10T14:36:54+00:0010. september 2009 14:36|

Messa og barnastarf 6. september

Messa og barnastarf kl. 11. Upphaf barnastarfsins. Umsjón Sigurvin og María. Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Fermd verður Guðrún Katrín Kjartansdóttir, Grenimel 44. Súpa, brauð og samfélag á Torgin. Klukkan 13. verður fyrirlestur Dr. Ann Belford Ulanov, Andlegt líf þjóðar í kreppu, en hún er [...]

By |2009-09-04T16:09:26+00:004. september 2009 16:09|

Biblíumatur föstudaginn 4. september

Hvað skyldi Heródes kóngur hafa borðað? Föstudaginn 4. september verður konunglegur og biblíulegur kjúklingaréttur í boði á Torginu í Neskirkju. Kynning hefst um kl. 12. Kokkarnir í þetta sinn verða Ólafía Björnsdóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson, sem kynnir líkamlegu næringu Ritningarinnar. Biblían er matarmikil og þjónar vel til sálar og líkama. […]

By |2009-09-02T21:34:39+00:002. september 2009 21:34|

Andlegt líf þjóðar í kreppu, fyrirlestur í Neskirkju

Dr. Ann Belford Ulanov sem er prófessor í geðlæknisfræði og trúarbragðafræði við Union Theological Seminary í New York heldur fyrirlestur í safnaðarheimili Neskirkju, sunnudaginn 6. september n.k..Fyrirlesturinn fjallar um þær áskoranir sem þegnar þjóðar standa frammi fyrir þegar að kreppir að líkt og nú hefur gerst á Íslandi og um viðbrögð mannlegrar vitundar við slíkar [...]

By |2009-09-02T14:56:46+00:002. september 2009 14:56|

Sunnudagaskóli og barnastarf Neskirkju

Næsta sunnudag hefst barnastarf Neskirkju með pompi og prakt. Sunnudagaskólaefnið er sélega vandað í ár en öll börn fá pappatösku og safna blöðum í hverri samveru með biblíusögu og skemmtilegum þrautum. Einnig hefur Þjóðkirkjan opnað nýja sunnudagaskólasíðu barnatru.is en þar er m.a. að finna skemmtilegt myndband frá Neskirkju. Sunnudagaskólateymið verður óbreytt frá síðasta vetri en [...]

By |2009-09-01T12:46:09+00:001. september 2009 12:46|

Gott eða illt

Að mæla gegn Heilögum anda er ekki það að efast, vera veikur í trúnni eða reiður Guði, þegar sorgin nístir og allt virðist mótdrægt. Nei, það er afstaðan að maður sjálfur, flokkur, málefni eða málstaður í veröldinni sé nafli hennar. Broddur ræðu Jesú er: “Hverju trúir þú? Prédikun Sigurðar Árna 30. ágúst er að baki [...]

By |2009-08-30T17:42:16+00:0030. ágúst 2009 17:42|

Góð manneskja í messu

Messa 30. ágúst kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari og talar um manngæði og hvaðan hið góða kemur. Textar dagsins eru baki þessari smellu. Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir messu.

By |2009-08-27T11:49:16+00:0027. ágúst 2009 11:49|